Leitaðu ekki fullkomnunar. Leitaðu jafnvægis

Æsir CBD & Skincare

Hverfisgötu 39, 101 Reykjavík

Kennitala: 601120-1510

Lokað

Hverfisgötu 39, 101 Reykjavík

Æsir CBD & Skincare

Sms

Hringja

Tölvupóstur

Lokað

Um Æsir CBD & Skincare

Verslunin Æsir býður upp á hágæða CBD vörur fyrir húð og líkama. CBD hefur róandi og bólgueyðandi áhrif á húðina og dregur úr roða. CBD er einnig talið hafa góð áhrif á svefn og kvíða auk þess stuðlar efnið að almennu jafnvægi í húð og líkama.


Upplifðu jafnvægi á eigin skinni

Húðin, stærsta líffærið okkar er fyrsta vörnin gegn því sem umhverfið og umheimurinn heldur að okkur. Í þúsundir ára hefur Cannabidiol (CBD) hjálpað okkur að róa, sefa og vernda húðina með því að stuðla að náttúrulegu jafnvægi í húðinni og líkamanum öllum.


Gildin okkar

Á Íslandi er ekkert dýrmætara en gott orðspor. Við lofum ekki upp í ermina á okkur og leggjum okkur fram við að vera heiðarleg í öllum okkar samskiptum. Við viljum gera heiminn betri og allar ákvarðanir okkar taka mið af því. Við erum ennþá að læra og lofum því að bæta okkur þar sem við bætingar er þörf. Við munum alltaf leitast við að velja sjálfbærar og vistvænar lausnir í okkar framleiðslu, við getum alltaf gert betur og munum gera það.

Við trúum á magnaðan kraft náttúrunnar. Við nýtum vísindin til að hreinsa, sía út og einangra hreina CBD olíu sem þú getur treyst. Vörurnar okkar eru blanda af náttúrulegum efnum úr plönturíkinu og olíum að viðbættu hárrréttu magni af CBD til að auka virkni þeirra. Markmið okkar er alltaf að fá sem mesta virkni úr eins fáum, náttúrulegum hráefnum og hægt er.

Við höldum því ekki fram að við höfum leyst lífsgátuna en trúum því að vörurnar okkar geti raunverulega breytt lífum þeirra sem hana prófa til hins betra.


Verið velkomin í verslun okkar á Hverfisgötu 39, 101 Reykjavík.

Vefverslun okkar er einnig alltaf opin.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt