ELKO Keflavíkurflugvelli - Panta og sækja
Athugið að þetta er eingöngu möguleiki fyrir kaup og afhendingu í brottfaraverslun. Kíktu á úrvalið á dutyfree.elko.is
Ferlið
- Þú skoðar vöruframboð í ELKO á Keflavíkurflugvelli hér á heimasíðunni. Ef þú ert með fyrirspurn um vöruframboð er hægt að senda fyrirspurn á flugstod@elko.is
- Þú setur það sem þú vilt panta í körfu
- Þegar þú hefur sett allt í körfu sem þú vilt panta getur þú skoðað körfu eða smellt á afgreiðslu til að halda áfram
- Ef þú velur að skoða körfu kemur upp 'Karfan þín' þar sem þú getur eytt út línum, breytt fjölda, eytt körfu eða haldið áfram að versla
- Ef þú vilt senda pöntun til ELKO smellir þú á ganga frá kaupum.
- Þú gefur upp flugnúmer, nafn og tölvupóstfang
- Smellir á greiðslu- og afhendingarmátar
- Pöntun er sótt í brottfaraverslun. Sjá opnunartíma hér.
- Greiðslumáti: eingöngu er hægt að greiða þegar vara er sótt í brottfaraverslun á Keflavíkurflugvelli
- Panta verður vörur með sólarhrings fyrirvara að lágmarki
- Ekki er mælt með því að panta vörur með meira en viku fyrirvara
Pöntunarnúmer
- Mikilvægt er að hafa pöntunarnúmer þegar pöntun er sótt
- Þegar pöntun er staðfest er sendur staðfestingarpóstur á uppgefið tölvupóstfang
- Hægt er að prenta út staðfestingarpóst eða sýna starfsmanni tölvupóstinn í símanum þínum
- Ef það kemur upp að þú fékkst ekki pöntunarstaðfestingu, er hægt að senda okkur fyrirspurn á flugstod@elko.is eða hringja í síma 575-8272
Ath. ef vara sem þú pantaðir er ekki á pöntunarstaðfestingunni sem er á pokanum þínum þegar þú sækir hann þá hefur hún ekki verið til þegar pöntunin var tekin saman. Þú getur spurt starfsmann um hvort varan sé komin aftur í sölu þar sem ný sending gæti hafa komið í hús eftir að pöntun var tekin til.