Rauði krossinn á Íslandi er hluti af alheimshreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans, stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum heims. Rauði krossinn heldur úti mannúðarstarfi á Íslandi og erlendis. Starfið er borið uppi af sjálfboðaliðum og frjálsum framlögum almennings. Af verkefnum félagsins má nefna:
Neyðaraðstoð, áfallahjálp og rekstur sjúkrabíla
Hjálparsíminn 1717 og netspjallið 1717.is
Frú Ragnheiður - skaðaminnkun
Skyndihjálparkennsla
Alþjóðlegt hjálparstarf
Fatasöfnun og Rauðakrossbúðirnar
Réttargæsla umsækjenda um alþjóðlega vernd
Félagsstarf og aðstoð fyrir flóttafólk og innflytjendur