Kennitala: 450810-0960
450810-0960
Opnunartími
Mánudaga til fimmtudaga: 8-12 og 13-16.
Föstudaga: 8-12 og 13-14:30.
Hurðir fyrir þá sem gera kröfur
Það er engin tilviljun að kröfuharðir notendur treysta á Héðins hurðir. Vandaðar iðnaðar- og bílskúrshurðir sem hafa sýnt sig og sannað við krefjandi íslenskar aðstæður.
Fáðu tilboð í hurðina
Á vefsíðu Héðins hurða er hægt að skoða nánari upplýsingar um útlit, áferð og litaúrval. Á vefsíðunni er einnig hægt að óska eftir tilboði í hurðina með því að fylla út helstu upplýsingar.
Þjónusta og varahlutir
Þjónusta Héðins hurða er afar víðtæk. Fyrirtækjum og húsfélögum býðst viðhaldsþjónusta og varahlutir eru ávallt til á lager. Starfsmenn Héðins hurða annast uppsetningu iðnaðarhurða til að tryggja réttan frágang og áhyggjulausa notkun. Með bílskúrshurðum fylgja nákvæmar leiðbeiningar um uppsetningu en einnig getum við bent á þjónustuaðila til að annast verkið.
Ryðfrítt eða galvanhúðað
Hægt er að fá hurðabrautir og festingar úr ryðfríu stáli fyrir starfsemi með mikið bleytuálag. Brautir og tilheyrandi festingar eru annars úr galvanshúðuðu stáli og gerðar fyrir mikið álag. Hjólin sem stýra hurðaflekunum eftir brautunum eru með kúlulegum til að hurðin renni létt og hljóðlega.
Úrval af gluggum
Glugga og heilar gluggaeiningar er hægt að hafa hvar sem er á hurðunum, eða hafa alla hurðina úr gluggaeiningum. Gluggarnir eru úr tvöflöldu níðsterku plasti með lofttæmdri einangrun. Gluggar hleypa inn birtu og gefa færi á að líta út í dagsins önn.
Góð einangrun
Hurðaflekanir eru með 40 mm þykkum pólýúreþan kjarna og ytra byrði er með 0,55 mm galvanhúðuðum stálplötum. Einangrunin tryggir mikla fyllingu og þar með mjög gott einangrunargildi K=0,55. W/m2°C. Hljóðdempun nemur 26 dB.