fyrir þig og þinn vinnustað

Rekstrarvörur

Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík

Kennitala: 580582-0609

Lokað | Opnar 08:00

Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík

Rekstrarvörur

Sms

Hringja

Tölvupóstur

Lokað | Opnar 08:00

Um Rekstrarvörur

 

Rekstrarvörur - hlutverk, markmið og 

RV var stofnað 18. maí 1982 og hefur á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun byggt upp traust samband við góða viðskiptavini og jafnan litið á viðskiptin sem samstarf sem báðir aðilar hafa hag af. 

RV er sérhæft sölu- og dreifingarfyrirtæki með hreinlætis-, hjúkrunar- og rekstrarvörur og leggur áherslu á heildarlausnir sem svara þörfum viðskiptavina og að veita ráðgjöf sem hentar aðstæðum á Íslandi. Heilbrigðissvið RV þjónar heilbrigðisstofunum og fyrirtækjum um land allt með þekktum vörumerkjum og faglegri ráðgjöf á þessu sviði.

 

      


Hlutverk RV hefur frá upphafi verið að sinna þörfum stofnana og fyrirtækja fyrir almennar rekstrar- , hreinlætis- og hjúkrunarvörur. Sú áhersla sem RV leggur á hagkvæmar heildarlausnir varðandi hreinlætismál, öryggismál og hjúkrunarvörur fyrir stofnanir og einstaklinga kallar á stöðugar endurbætur í þjónustunni og lifandi ráðgjöf á því sviði.

 

      


Markmið RV er að bjóða ávallt fyrsta flokks vöruúrval, persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf.

Rekstrarvörur er þjónustufyrirtæki sem tekur stöðugum breytingum. RV-merkið er trygging fyrir áreiðanleika, stöðugleika og gæðum.

 

      


Hjá RV starfar samhentur hópur 55 starfsmanna á Íslandi og 20 í Danmörku hjá RV Unique.

Grunngildi RV eru traust, þjónusta, jákvæðni og liðsheild.

Starfsmenn RV fá þjálfun og fræðslu sem gerir þá öflugri á sínu sviði. RV er reyklaus vinnustaður.

Verslun RV

Verslun RV að Réttarhálsi 2 er opin virka daga kl. 8 - 17 og laugardaga kl. 11 - 15


   

Vefverslun RV.is

Vefverslun RV er opin allan sólarhringinn.

Vörur sem eru pantaðar eftir kl. 16:00 á föstudögum verða afgreiddar næsta virkan dag.