Kennitala: 471016-0630
471016-0630
Áttu rafrænan lyfseðil? Brátt getur þú pantað afgreiðslu á lyfseðlunum þínum hér.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar bæði vélskömmtun og handskömmtun lyfja.
Reykjanesapótek býður upp á heimsendingu á lyfjum án endurgjalds
Við bjóðum upp á víðtæka þjónustu á hjúkrunarsviði. Við erum með sérhæfðar hjúkrunarvörur á lager og getum sett saman stórar eða smáar sjúkratöskur fyrir einstaklinga og allar stærðir fyrirtækja og stofnanna.
Við mælum blóðþrýsting, blóðsykur og súrefnismettun endurgjaldslaust. Einnig er hægt að láta mæla D vítamín og járn gegn vægu gjaldi. Engar tímapantanir, heldur þarf bara mæta á svæðið á Hólagötu eða Fitjar
Lyfjastoð er persónuleg viðtalsþjónusta sem fer fram í Reykjanesapóteki og gefur viðskiptavinum okkar tækifæri til að spyrja allra þeirra spurninga sem þau hafa um lyfjameðferð sína í persónulegu samtali við sérþjálfaðan lyfjafræðing.