Kennitala: 681205-0470
681205-0470
Sjúkraþjálfun Kópavogs er elsta sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarstofa landsins. Við önnumst bæði sértæka og alhliða sjúkraþjálfun og stillum okkur upp við hlið viðskipavinanna með einkunnarorðin “stendur með þér” að leiðarljósi.
Við hefjum merðferð hvers viðskipavinar á nákvæmri skoðun og greiningu á þeim stoðkerfisvandamálum sem skerða hreyfigetu eða valda vanlíðan og truflun í leik og starfi. Í kjölfar greiningar er gerð meðferðaráætlun með skýrum markmiðum um aukna færni og lífsgæði. Um leið hefst samstarf sjúkraþjálfarans og skjólstæðings hans – samstarf þar sem dugnaður og úthald hins síðarnefnda skiptir sköpum um árangur.
Í Sjúkraþjálfun Kópavogs starfa tíu sjúkraþjálfarar og eru margir þeirra með sérhæfða viðbótarmenntun sem nýtist öllum viðskiptavinum í ráðgjöf og meðferð stofunnar. Eðli sjúkraþjálfunar er að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft. Í þeim efnum erum við dyggir stuðningsmenn.
Sjúkraþjálfun Kópavogs ehf Hamraborg 12 200 Kópavogur sími 554 5488 / 564 1766 www.sjk.is sjk@sjk.is |
||