Kennitala: 520116-0360
520116-0360
Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er framsækið innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem byggir á traustum grunni og áratuga faglegri reynslu en starfsemin tilheyrði áður Heilbrigðissviði Eirbergs. Stoðsvið félaganna og yfirstjórn eru sameiginleg. Stuðlaberg býður fagaðilum og almenningi vandaðar vörur og faglega ráðgjöf. Þar starfa hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni.
Söluráðgjöf Stuðlabergs á sviði stóma- og þvagleggja er sú viðamesta hér á landi og er í höndum hjúkrunarfræðinga sem hlotið hafa sérþjálfun framleiðenda. Veitt er persónuleg aðstoð við að finna hentugar vörur sem eru í rammasamningum Sjúkratrygginga Íslands. Vörupantanir má senda á hjukrun@stb.is eða hringja í síma 569-3198. Vinsamlegast gefðu upp nafn þess sem pantað er fyrir, kennitölu, hvaða vöru verið er að panta og magn. Fyllsta trúnaðar er ætíð gætt. Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Nánari upplýsingar um þjónustuna má finna hér.
Upplýsingavefur Stuðlabergs býður fjölbreytt vöruval sem finna má undir vöruflokkum og undir vöruheitum framleiðenda. Þar er unnt að afla sér fræðslu um heilbrigðisvörur og ganga frá pöntunum. Einnig má nota leitargluggann efst til að finna vörur.
Gengið er inn um aðalinngang og niður eina hæð eða með lyftu. Næg bílastæð, ásamt stæði fyrir hreyfihamlaða. Hægt er að senda þjónustubeiðnir á hjalp@stb.is - Sími 569-3190. Þjónustusamningur er við Sjúkratryggingar Íslands.
Vöruhús er opið kl. 8:00-17:00. Netfang: voruhus@eirberg.is - Sími: 569-3127.
Skrifstofan Stórhöfða; fjármál, bókhald, innheimtur og innflutningur. Netfang: skrifstofa@stb.is
Í sýningarsal Stuðlabergs á efstu hæð að Stórhöfða 25 eru til sýnis og prófunar hin ýmsu hjálpartæki og margvíslegar vörur. Við bjóðum fagfólki og skjólstæðingum þeirra velkomið í sýningarsalinn. Vinsamlegast hafið samband við söluskrifstofu Stuðlabergs heilbrigðistækni á 2. hæð ef fá þarf faglegar upplýsingar eða fræðslu um búnað. Senda má ósk um heimsókn á netfang tiltekins starfsmanns eða á netfangið stb@stb.is
Við hvetjum viðskiptavini og gesti okkar að gera boð á undan sér svo tryggt sé að viðkomandi sérfræðingur sé til staðar þegar komið er.
Stuðlaberg heilbrigðistækni er með samninga við Sjúkratryggingar Íslands m.a. um: