Sérfræðingar í útlitslækningum í yfir 20 ár

Bolli Bjarnason dr med húð- og kynsjúkdómalæknir - Útlitslækning

Grensásvegi 13, 108 Reykjavík

Kennitala: 621101-5010

Grensásvegi 13, 108 Reykjavík

Bolli Bjarnason dr med

húð- og kynsjúkdómalæknir - Útlitslækning

SMS

Hringja

Tölvupóstur

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki
  • Lýtahúðlækningar, húð- og kynsjúkdómalækningar og
  • lasermeðferðir beinn sími
  • Tannlækningar beinn sími
  • - Bolli Bjarnason dr með húð- og kynsjúkdómalæknir
  • - Ellen Flosadóttir M Sc, VEIT tannlæknir heima
  • - Ásgerður Sverrisdóttir, tannlæknir

Upplýsingar

 

    Algengar meðferðir


Háreyðing – óæskilegur hárvöxtur - hárlaser

Svört hár er hægt að fjarlægja hvar sem er á líkamanum! Slíkar meðferðir eru algengar í andliti, á hálsi, við bikinilínur, á ganglimum, á baki og á handleggjum. Æskilegt er að fjarlægja svört hár áður en þau tapa lit fyrir besta mögulega árangur. Stundum hefur óeðlilegur hárvöxtur læknisfræðilegar skýringar.
 

 

háreyðingar fyrir og eftir.

Rósroði eða æðaslit í andliti, á ganglimum eða valbrá  - æðalasermeðferð

Hægt er að fjarlægja æðar hvar sem er á húðinni með laser frá yfirborði húðarinnar án þess að stinga einu eða öðru inn í húðina!

 
Hrukkur - andlitsfellingar - ELOS – hrukkulaser – húðfyllingarefni- Hrukkubani

Við notum laser og ELOS til að tinna andlitshúðina, fjarlægja hrukkur og minnka áberandi andlitsfellingar. Húðfyllingarefni með hýalúronsýru sem er í húð manna notast einnig talsvert. Í völdum tilfellum beitum við Hrukkubana sem er efni sem slakar á vöðvum. Markmið hrukkumeðferða er að ná aftur eðlilegri húð og viðhalda henni eðlilegri án þess að ofgera.

 

 

Appelsínuhúð (cellulitis) og fitufellingar - fitueyðing

Hægt er að eyða fitu með hljóðfitueyðingu (high-intensity focused ultrasound), kælifitueyðingu (cryolipolysis) eða með ELOS og Endermologie saman.


Hljóðfitueyðing (Cavitation, high-intensity focused ultrasound)

Þessi tækni er mest notuð til að eyða óæskilegri húðfitu hvar sem er á líkamanum, til að endurmóta líkamslínur, minnka ummál líkamshluta, minnka fitukeppi og vinna á appelsínuhúð.

Kælifitueyðing eða fitufrysting (cryolipolysis)

Þessi gerð fitueyðingar byggir á kælingu fitufruma sem leiðir til þess að frumurnar eyðast á náttúrulegan hátt. Aðferðin er m.a. notuð gegn fitu í fitufellingum sem gefa sig illa þrátt fyrir megrun.

Húðflúr (tattoo) og húðflúrsbrottnám

Brottnám húðflúra byggir á eyðingu húðflúrslitarins með laser.

Ör – hlaupabóluör – húðslit – slök húð - húðslípun – ELOS - örlaser

Meðferðin fer fram með laserum, ELOS og/eða húðslípunum og þegar um ör er að ræða einnig stundum með lyfjagjöfum og frystimeðferðum allt eftir gerð öranna.

Lasermeðferð gegn bólum

Þessar meðferðir byggja á gjöf lasergeisla gegn bólum.

Lasermeðferð gegn brúnum meinum

Meta þarf brún mein af lækni og er sumum hverjum eytt með lasergeisla frá yfirborði húðarinnar.

Varafylling – varalínur – áberandi sinar á hálsi – fellingar á hálsi eða yfir bringubeini – rýr húð á handarbökum – kinnfiskasognar kinnar

Húðfyllingarefni sem eru ekki fjarræn líkamanum eru notuð til þessara meðferða og stundum ELOS við fellingum.

Opin andlitshúð – ELOS – peel sýrumeðferð

Við notum talsvert ELOS eða læknisfræðileg peel til að vinna gegn opinni andlitshúð.

Blámi umhverfis augun – FACES

FACES hefur sýnt sig minnka bláma umhverfis augun.

Svitavandamál í holhöndum, á höndum og fótum

Fræðsla um lýtahúðlækningar fyrir heyrnardaufa:
 

Nánar á www.utlitslaekning.is