Kennitala: 630102-2190
630102-2190
Valur Helgason ehf. hefur safnað mikilli reynslu og þekkingu á stíflulosun, röramyndatökum, rótarfræsingum og ýmsum öðrum þáttum er viðkoma frárennslislagnir fyrirtækja, stofnana og heimila. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í um hálfa öld.
Þjónusta fyrirtækisins er margþætt en við sérhæfum okkur meðal annars í að fjarlægja stíflur til dæmis úr eldhús- og baðvöskum, salernisrörum, baðkerum, niðurföllum, þaklögnum og drenlögnum auk fjölþættrar þjónustu við sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki.
Fyrirtækið á nokkrar sérhæfðar bifreiðar með öflugum útbúnað til stíflulosunar og fullkomnustu röramyndavélar sem í boði eru á markaðnum. Allt frá örsmáum vélum sem komast niður í eldhúsvaska yfir í hitamyndavélar. Myndavélarnar eru með staðsetningarbúnaði og dýptarmælum sem staðsetja bilanir, stíflur, falin niðurföll o.þ.h. af mikilli nákvæmni.