Vörumynd

ÁTTAVILLT fullorðinspeysa - uppskrift

Stroff

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað , þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum le…

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað , þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

ÁTTAVILLT - fullorðinspeysa

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring. Mynsturbekkur er í berustykki þar sem aukið er út samkvæmt mynsturmynd.
Peysan er síðari að aftan , og er það framkvæmt með "German Short Rows", en mjög góðar leiðbeiningar eru í uppskrift auk þess sem við bjuggum til myndband sem vísað er á í uppskriftinni.
Efni:
-Katia Merino Aran eða Aran Natur
-Special Aran with Wool


Það sem þarf
- hringprjónar nr. 5.5 – 6 (40 sm, 80 sm og 100 sm langir)
- hringprjónn nr. 4.5 – 5 (80 eða 100 sm langur fyrir stroff á bol)
- sokkaprjónar nr. 4.5 – 5 (fyrir stroff á ermum)
- prjónamerki
- nál til frágangs

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XS: 32 sm
S: 34 sm
M: 36 sm
L: 38 sm
XL: 40 sm

Ummál á bol
XS: 108 sm
S: 115 sm
M: 120 sm
L: 125 sm
XL: 130 sm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XS: 39 sm
S: 41 sm
M: 43 sm
L: 45 sm
XL: 47 sm

Ummál á ermum
XS: 33 sm
S: 35 sm
M: 37 sm
L: 38 sm
XL: 40 sm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 5,5 - 6 gera 10 sm með því að nota Merino Aran frá Katia.


Almennar upplýsingar

Stærð Aðallitur Aukalitur 1 Aukalitur 2 Aukalitur 3
XS 500 gr 100 gr 100 gr 100 gr
S 600 gr 100 gr 100 gr 100 gr
M 600 gr 100 gr 100 gr 100 gr
L 600 gr 100 gr 100 gr 100 gr
XL 700 gr 100 gr 100 gr 100 gr

Verslaðu hér

  • Amma mús
    Amma mús - handavinnuhús 511 3388 Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.