Energizing Superactive Serum fyrir hárlos, hár sem er að þynnast, viðkvæmt og brothætt hár. Örvandi serum sem hjálpar til við að koma í veg fyrir einkenni hárlos af völdum andrógenfræðilegra þátta (arfgengra, erfðafræðilegra og hormóna). Serumið dregur úr offramleiðslu fitu og bætir hárþéttleika og inniheldur þykkni úr mungbaunum og logasmára. Þessi þykkni koma jafnvægi á frumurnar í hársverðin…
Energizing Superactive Serum fyrir hárlos, hár sem er að þynnast, viðkvæmt og brothætt hár. Örvandi serum sem hjálpar til við að koma í veg fyrir einkenni hárlos af völdum andrógenfræðilegra þátta (arfgengra, erfðafræðilegra og hormóna). Serumið dregur úr offramleiðslu fitu og bætir hárþéttleika og inniheldur þykkni úr mungbaunum og logasmára. Þessi þykkni koma jafnvægi á frumurnar í hársverðinum og hamla ensímið sem breytir testósteróni í díhýdrótestósterón og kemur þannig í veg fyrir hárlos af völdum hormónabreytinga. Energizing Superactive Serum er sérstaklega ætlað til að koma í veg fyrir hárlos og er hluti af 6 vikna Energizing hárlosmeðferð. Til að ná hámarksárangri er mælt með að nota Energizing sjampóið með hárlosmeðferðinni og bera serumið í hreinan og rakan hársvörð.
Notkun: Notist daglega í 3 vikur og svo 2 til 3 í viku næstu 3 vikurnar. Eftir að hafa þvegið hárið með Energizing sjampóinu skaltu bera serumið í hársvörðinn með 1 til 2 fylltum pípettum og nudda vel og vandlega í hársvörðinn með fingurgómunum eða hársvarðarbursta. Ekki skola úr.
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.