Fararefni geymir safn greina sem urðu til í framhaldi af málþingi um Þorstein frá Hamri og verk hans haustið 2022. Í bókinni fjalla ellefu manns, skáld og fræðafólk, um ljóð Þorsteins, sagnaskáldskap og önnur skrif og varpa ljósi á verkin úr ólíkum áttum og með ólíkum aðferðum. Fremst er birt grein Þorsteins sjálfs frá árinu 1961 þar sem hann lýsir átthögum sínum í Borgarfirði. Ástráður E…
Fararefni geymir safn greina sem urðu til í framhaldi af málþingi um Þorstein frá Hamri og verk hans haustið 2022. Í bókinni fjalla ellefu manns, skáld og fræðafólk, um ljóð Þorsteins, sagnaskáldskap og önnur skrif og varpa ljósi á verkin úr ólíkum áttum og með ólíkum aðferðum. Fremst er birt grein Þorsteins sjálfs frá árinu 1961 þar sem hann lýsir átthögum sínum í Borgarfirði. Ástráður Eysteinsson ritstýrir bókinni og skrifar inngang.
Þorsteinn frá Hamri var tæplega tvítugur þegar hans fyrsta ljóðabók, Í svörtum kufli , kom út árið 1958. Ljóðabækurnar urðu alls tuttugu og ein, en sú síðasta, Núna , kom út 2016. Einnig sendi hann frá sér skáldsögur og bækur með sagnaþáttum auk þýðinga. Þorsteinn lést árið 2018 og lét eftir sig dýran sjóð í ljóðum og lausu máli.
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.