Vörumynd

FitCo Commercial Hlaupabretti

FitCo
Commercial hlaupabrettið frá FitCo er toppurinn í línunni þeirra - hér er á ferðinni hlaupabretti í fullri stærð sem hannað er með mikla notkun í huga og hentar því jafnt heimilum sem æfingastöðvum. 4 hestafla AC mótor fleytir brettinu upp í allt að 25km/h og byrjunarhraðinn er aðeins 0,5km/h sem gerir brettið einnig að góðum kosti fyrir sjúkraþjálfara. Brettið er búið rafstýrðum hallamótor sem f…
Commercial hlaupabrettið frá FitCo er toppurinn í línunni þeirra - hér er á ferðinni hlaupabretti í fullri stærð sem hannað er með mikla notkun í huga og hentar því jafnt heimilum sem æfingastöðvum. 4 hestafla AC mótor fleytir brettinu upp í allt að 25km/h og byrjunarhraðinn er aðeins 0,5km/h sem gerir brettið einnig að góðum kosti fyrir sjúkraþjálfara. Brettið er búið rafstýrðum hallamótor sem fer með það upp í 15% halla að hámarki. Hlaupasvæðið á brettinu er virkilega stórt (160cm langt, 60cm breitt) og búið góðu fjöðrunarkerfi sem gerir það afar gott í spretti en einnig gott fyrir einstaklinga sem hafa skert jafnvægi. Þegar það kemur að hlaupabrettum þá skiptir stærðin talsverðu máli - Commercial brettið er 177kg að þyngd svo það er afar stöðugt óháð hraða. Þessari þyngd er náð með öflugu stálvirki, þykkum keflum (10cm), öflugri plötu (25mm) og vönduðum íhlutum. FitCo valdi 4 hestafla AC mótor í brettið en AC mótorar eru kraftmeiri, hljóðlátari og endingarbetri en DC mótorar sem eru yfirleitt notaðir í ódýrari hlaupabretti. FitCo brettið er eitt af fáum brettum á markaðnum sem ná 200kg hámarksþyngd notanda. Á brettinu er Commercial Tread mælaborðið frá FitCo sem að býður upp á fjöld æfingakerfa og hefur bluetooth móttakara. Brettið er einnig búið neðra mælaborði sem að hefur flýtihnappa fyrir bæði hraða og halla (frábært í lotuþjálfun) ásamt flipum til hliðanna sem gera breytingar á hraða/halla afar auðveldar. Brettið er smurt með sílíkoni en beltið í brautinni er hannað með mikla notkun í huga og því þarf aðeins að smyrja það á um 8 þúsund kílómetra fresti (flest heimabretti þarf að smyrja á 200-300km fresti). Brettið kemur með ledborðum sem lýsa hlaupasvæðið en það er einnig hægt að slökkva á þeim ef litirnir passa ekki rýminu. Helstu mál o.fl. Hámarksþyngd notanda: 200kg Þyngd tækis: 177kg Mál (LxBxH): 230cm x 91cm x 163cm Hlaupasvæði: 160x60cm Kefli: 10cm Hraði: 0,5km/h til 25km/h Halli: 0-15% Mótor: 4 hestafla AC mótor Plata: 2,5cm Belti: 4,3mm - smurning á um 8 þúsund km fresti með sílíkoni Mælaborð: FitCo Commercial Tread Console Mælaborð sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, halla, kaloríubrennslu og hjartslátt (ef haldið er í mæla/notast við púlsmæli) Æfingakerfi: 28 í heild, 4 custom kerfi og 3 hjartsláttarstýrð Ábyrgð: 2 ár á lykilpörtum, 3 mánuðir á snertiflötum t.d. takkar og belti Stærð kassa (LxBxH): 226 x 105 x 52cm Þyngd kassa: 196kg

Verslaðu hér

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.