Það var árið 1970 að Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta Fuzzy stólinn, lítinn koll með sútaðri lambsgæru með ullinni eins og hún kemur af kindinni. Fætur eru renndir í líki vatnsdropa. Hver og einn Fuzzy kollur er einstakur þar sem enginn er nákvæmlega eins. Fuzzy kollurinn er algerlega tímalaus hönnun sem á inni alls staðar fyrir einstakt útlit og flott yfirbragð. …
Það var árið 1970 að Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta Fuzzy stólinn, lítinn koll með sútaðri lambsgæru með ullinni eins og hún kemur af kindinni. Fætur eru renndir í líki vatnsdropa. Hver og einn Fuzzy kollur er einstakur þar sem enginn er nákvæmlega eins. Fuzzy kollurinn er algerlega tímalaus hönnun sem á inni alls staðar fyrir einstakt útlit og flott yfirbragð. Hönnun: Sigurður Már Helgason Ár: 1970 Litur: Hægt er að fá Fuzzy í hvítu, svörtu, gráu, flekkóttu og mórauðu. Hægt er að skrifa í athugasemd hvaða lit viðskiptavinur vill. Efniviður: Litli íslenski gærukollurinn hefur fjóra ávala og sterka viðarfætur. Setan er bólstruð með ekta íslenskri gæru. Fuzzy kemur í sérhönnuðum kassa af stærð 40 x 37 x 14 cm og heildarþyngd er 3 kg. Kassinn hentar vel til sendinga innanlands og utan.