Dagbók fyrir börn og ungmenni sem eflir sjálfsþekkingu og eykur vellíðan.
Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að pe…
Dagbók fyrir börn og ungmenni sem eflir sjálfsþekkingu og eykur vellíðan.
Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra. Svokölluð jákvæð inngrip hafa reynst áhrifarík í því að viðhalda hamingju og öðrum jákvæðum tilfinningum ásamt því að minnka þunglyndi og kvíða
Dagbókin telur 100 daga þar sem jákvæða inngripið
þrír góðir hlutir
er í forgrunni. Þar skráir barnið niður þrjá góða hluti sem áttu sér stað þann daginn. Dögunum er skipt upp í 21 þemu;
tilfinningar
,
styrkleika
,
hamingju
,
bjargráð við streitu og kvíða
,
gróskuhugarfar
,
trú á eigin getu
,
sjálfstal
,
sjálfsvinsemd
,
markmið
,
seiglu
,
svefn
,
hreyfingu
,
útiveru
,
núvitund
,
öndun
,
að njóta
,
flæði
,
þakklæti
,
góðvild
,
bjartsýni
og
von
. Hvert og eitt þessara þema er útskýrt á einfaldan hátt til að auðvelda skilning.
Á hverjum degi má einnig finna
gleðimola
eða
gleðifræ
dagsins sem tengist þemanu hverju sinni í formi hugleiðinga, tilvitnana, áskorana og æfinga.
Markmið Gleðskruddunnar er að efla sjálfsþekkingu, trú á eigin getu og þrautseigju , ásamt því að auka jákvæðar tilfinningar , bjartsýni og vellíðan .
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.