Vörumynd

Guideline Rivolt 10' #6

Guideline
Guideline Rivolt 10' #6 er fjölhæf flugustöng sem býður upp á aukna lengd og betri stjórn á línu í veiðinni. Hún hentar vel í ár og vötn, en einnig í létta strandveiði þar sem þarf að ná aðeins lengra og halda betri stjórn á flugunni.Rivolt-línan er þróuð með áherslu á góða kastgetu og einfaldleika í notkun. Hér er ekkert flókið. Stöngin er hönnuð til að skila stöðugri og áreiðanlegri frammistöðu…
Guideline Rivolt 10' #6 er fjölhæf flugustöng sem býður upp á aukna lengd og betri stjórn á línu í veiðinni. Hún hentar vel í ár og vötn, en einnig í létta strandveiði þar sem þarf að ná aðeins lengra og halda betri stjórn á flugunni.Rivolt-línan er þróuð með áherslu á góða kastgetu og einfaldleika í notkun. Hér er ekkert flókið. Stöngin er hönnuð til að skila stöðugri og áreiðanlegri frammistöðu við fjölbreyttar aðstæður. Uppbyggingin byggir á Stoked línunni en með betri svörun og nútímalegri tilfinningu í kasti.Með mið-til-topp sveigju er stöngin þægileg í meðförum og vinnur vel bæði á styttri og lengri köstum. Aukna lengdin hjálpar við að halda línunni frá vatni og gefur betri stjórn í straumi, sem nýtist sérstaklega vel við púpuveiði og þegar veitt er með straumflugum.Guideline Rivolt 10‘ #6 er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja stöng sem ræður við fjölbreytt verkefni og gefur aukna stjórn í veiðinni. Hún hentar vel þegar þarf að vinna fluguna markvisst og halda góðu sambandi við hana allan tímann. Helstu einkenni • Lengri stöng sem gefur betri línustýringu• Mið-til-topp sveigja sem gerir kastið þægilegt• Hentar vel í ár, vötn og létta strandveiði• Góð fyrir púpur og straumflugur• Áreiðanleg stöng fyrir fjölbreytta notkun
  • Veiðiflugur | 527 1060 527 1060 Langholtsvegi 111, 104 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.