Maríuerla: Hreiðurhús sem hentar fyrir maríuerlur. Maríuerlan er farfugl sem heldur til við ár og vötn á sumrin en einnig er hún mikið við sveitabæi og sumarbústaði. Maríuerluhúsið skal festa upp utan á húsvegg í 3-4 m hæð. Húsið má gjarnan vera undir þakskeggi. Þar sem svo háttar til að hægt er að setja húsið neðan undir brú yfir á og er þá næsta víst að maríuerlur muni taka þar búsetu. Eftir v…
Maríuerla: Hreiðurhús sem hentar fyrir maríuerlur. Maríuerlan er farfugl sem heldur til við ár og vötn á sumrin en einnig er hún mikið við sveitabæi og sumarbústaði. Maríuerluhúsið skal festa upp utan á húsvegg í 3-4 m hæð. Húsið má gjarnan vera undir þakskeggi. Þar sem svo háttar til að hægt er að setja húsið neðan undir brú yfir á og er þá næsta víst að maríuerlur muni taka þar búsetu. Eftir varp á að fjarlægja hreiðrið úr maríuerluhúsinu. Maríuerluhús á ekki að setja upp þar sem að kettir ná til. Fuglahús Fuglaverndar eru smíðuð á Litla Hrauni.