Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað , þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum le…
Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað , þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Ilmur krakkapeysa
Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður, í hring, með gatamynstri í berustykki. Ermar og bolur er prjónað með sléttu prjóni. Stroff í hálsmáli, ermum og á bol er prjónað með snúnum sléttum lykkjum.
Efni
1 þráður af
Merinocot
frá Lana Gatto
og
1 þráður af
Mohair
(t.d. Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto).
Fyrir þá sem ekki vilja mohair er hægt að nota t.d.
Katia Merino Sport
eða
Kirei
frá Katia, eða
Maxi Soft
/
Nuovo Irlanda
frá Lana Gatto.
Stærðir og magn af garni
Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 5.5 (40 og 60/80 cm langir)
- Hringprjónn nr. 5 (60/80 cm langur fyrir stroff á bol)
- Sokkaprjónar nr. 5.5
- Sokkaprjónar nr. 5 (fyrir stroff á ermum)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Lengd bolur, frá handvegi
1-2 ára: 17.5 cm
2-4 ára: 19.5 cm
4-6 ára: 24 cm
6-8 ára: 27 cm
8-10 ára: 31 cm
10-12 ára: 35 cm
Ummál bolur
1-2 ára: 65 cm
2-4 ára: 70 cm
4-6 ára: 75 cm
6-8 ára: 80 cm
8-10 ára: 90 cm
10-12 ára: 97 cm
Lengd ermar, frá handvegi
1-2 ára: 18 cm
2-4 ára: 20 cm
4-6 ára: 23 cm
6-8 ára: 27 cm
8-10 ára: 30 cm
10-12 ára: 35 cm
Ummál ermar
1-2 ára: 23 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 25 cm
6-8 ára: 27.5 cm
8-10 ára: 30 cm
10-12 ára: 32.5 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkja á prjóna nr. 5,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merinocot og einn þráð af Mohair.
Stærð | Merinocot | Mohair |
1-2 ára | 150 g | 50 g |
2-4 ára | 200 g | 50 g |
4-6 ára | 200 g | 50 g |
6-8 ára | 250 g | 75 g |
8-10 ára | 250 g | 100 g |
10-12 ára | 300 g | 100 g |
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.