Jack á sér uppáhaldsleikfang – lítið tuskusvín. Svínið hefur fylgt honum alla tíð, í gegnum súrt og sætt. Þangað til aðfangadagskvöld eitt að hið hræðilega gerist: svínið týnist. En jólanótt er tími kraftaverkanna, nóttin þegar allir hlutir geta lifnað við – jafnvel leikföng. Og nýjasta leikfang Jacks – Jólasvínið (þessi pirrandi staðgengill tuskusvínsins) – fær djarfa hugmynd. Saman leggja þe…
Jack á sér uppáhaldsleikfang – lítið tuskusvín. Svínið hefur fylgt honum alla tíð, í gegnum súrt og sætt. Þangað til aðfangadagskvöld eitt að hið hræðilega gerist: svínið týnist. En jólanótt er tími kraftaverkanna, nóttin þegar allir hlutir geta lifnað við – jafnvel leikföng. Og nýjasta leikfang Jacks – Jólasvínið (þessi pirrandi staðgengill tuskusvínsins) – fær djarfa hugmynd. Saman leggja þeir upp í ævintýralegan leiðangur í leit að týnda leikfanginu – til að bjarga besta vini Jacks.
Jólasvínið er hugljúft en spennandi ævintýri um uppáhaldsleikfang drengs og hversu langt hann er tilbúinn til að ganga til að finna það. Þetta er fyrsta skáldsaga J.K. Rowling fyrir börn og unglinga eftir að hún skildi við Harry Potter.
Bókina prýða teikningar eftir Jim Field en hann er margverðlaunaður myndskreytir.
Ingunn Snædal þýðir.
Jólasvínið
er falleg barnabók sem hægt er að lesa fyrir börn, sex ára og eldri. Eldri börnin ættu að sjálfsögu að spreyta sig á lestrinum sjálf. Auðvelt er að spegla sig í tilfinningum Jack; reiði, sorg, gleði, trega og efa. Bókin er rússíbanareið tilfinninga og virkilega gott ævintýri.“ Lestrarklefinn
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.