Nafn sjalsins "Korter í Blönduós" er tilkomið af því að garnið sem mælt er með að nota er Vatnsnes Yarn en stúdíóið okkar er jú staðsett á norðurlandi vestra, einmitt sirka korter í Blönduós. Sjalið er prjónað að neðan og upp og notast er við einfalt munstur þar sem einungis er verið að nota einn lit í einu. Upplýsingar: Garn: Merino Fingering frá Vatnsnes Yarn Litir í uppskrift: Litur A …
Nafn sjalsins "Korter í Blönduós" er tilkomið af því að garnið sem mælt er með að nota er Vatnsnes Yarn en stúdíóið okkar er jú staðsett á norðurlandi vestra, einmitt sirka korter í Blönduós. Sjalið er prjónað að neðan og upp og notast er við einfalt munstur þar sem einungis er verið að nota einn lit í einu. Upplýsingar: Garn: Merino Fingering frá Vatnsnes Yarn Litir í uppskrift: Litur A =Greypt í stein (100g hespa) Litur B = Moonlight Shadow (20g ) Litur C = Fyrir Framan (20g ) Litur D = Elfur(20g ) Litur E = Iða (20g ) Litur F = Charm (20g) Litur G = Gull í mund (20g ) Grófleiki garns: Fingering grófleiki Prjónfesta: 18 L = 10 cm óstrekkt í garðaprjóni. Prjónar: 4.0 mm hringprjónn, amk 80 cm Stærðir: Ein stærð; um 2,30 m á lengd (vænghaf) og50 cm á hæð (sídd).