Vörumynd

Life Fitness IC4 spinning hjól

Life Fitness
Life Fitness IC4 spinning hjólin eru sérlega vönduð hjól sem að henta vel til notkunar í jafnt heimahúsi sem og æfingastöð. Hjólið sameinar fallega hönnun og hágæða íhluti til þess að skapa sem bestu upplifun fyrir notandann. Með IC4 spinning hjólinu getur þú tekið öfluga æfingu heima fyrir. Hjólið er afar þægilegt í notkun en bæði hnakk og stýri er hægt að stilla bæði fram og aftur. Það að koma …
Life Fitness IC4 spinning hjólin eru sérlega vönduð hjól sem að henta vel til notkunar í jafnt heimahúsi sem og æfingastöð. Hjólið sameinar fallega hönnun og hágæða íhluti til þess að skapa sem bestu upplifun fyrir notandann. Með IC4 spinning hjólinu getur þú tekið öfluga æfingu heima fyrir. Hjólið er afar þægilegt í notkun en bæði hnakk og stýri er hægt að stilla bæði fram og aftur. Það að koma sér í réttu stellinguna á hjólinu skiptir gríðarlega miklu máli eins og allir sem eitthvað hafa stundað hjólreiðar vita. Stýrið á hjólinu er gripgott og húðað með mjúkri húð sem að minnkar álag á hendur. Stýrið er hannað þannig að hægt sé að vera í nokkrum mismunandi stellingum án þess að þurfa að breyta um stillingar á stýrispóstinum. IC4 hjólið byggir á segulmótstöðu sem að er svo gott sem viðhaldsfrír búnaður sem lítið heyrist í. Notað er sérstakt Poly-V belti sem að er gríðarlega sterkt og þarfnast ekki reglulegs viðhalds eins og t.d. Keðja. Stjórnað er mótstöðunni með flipa sem að virkar einnig sem neyðarbremsa. Sérstök hlíf umlykur búnaðinn í hjólinu til þess að vernda hann frá svita og ryki. Helstu mál o.fl. Mótstöðustilling: Mótstöðuflipi á stýrispósti Mótstaða: Segulbremsa Efni í grind: Stál Stýri: Fjölgrip, húðað með mjúku PVC Stýrisstillingar: Upp/niður, fram/aftur Sætisstillingar: upp/niður, fram/aftur Pedalar: Standard og SPD (Dual sided) Hlífar: Drifbúnaður og rammi eru búnir hlífum sem að verndar frá svita o.s.frv. Hjól á grind: Já, tvö að framan Vatnsbrúsahaldari: Já, á stýri Þyngd, samsett: 50kg Stærð (L x B x H): 132cm X 52cm X 120cm Drifbúnaður: Poly-v belti, segulmótstaða Gírhlutfall drifbúnaðar: 1:10 Hámarksþyngd notanda: 150kg Q-Factor: 155mm Sveif: CrMo 172,5mm

Verslaðu hér

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.