Vörumynd

Life Fitness T5 hlaupabretti GO

Life Fitness
T5 hlaupabrettið er hannað til heimanotkunar, brettið er kraftmikið en á sama tíma hljóðlátt. Hægt er að stilla stífleika fjöðrunar og búa til æfingaprógröm. Auðvelt er að stilla hraða og halla á brettinu á flýtihnappaborði eða á stjórnborðinu sjálfu. Hlaupabrautin er afar vel byggð og á að þola mikla notkun í fjölda ára. Hlaupaflötur er með þeim stærri í geiranum, mótorinn er kraftmikill og 3 mi…
T5 hlaupabrettið er hannað til heimanotkunar, brettið er kraftmikið en á sama tíma hljóðlátt. Hægt er að stilla stífleika fjöðrunar og búa til æfingaprógröm. Auðvelt er að stilla hraða og halla á brettinu á flýtihnappaborði eða á stjórnborðinu sjálfu. Hlaupabrautin er afar vel byggð og á að þola mikla notkun í fjölda ára. Hlaupaflötur er með þeim stærri í geiranum, mótorinn er kraftmikill og 3 mismunandi stillingar eru á stífleika fjöðrunar. Life Fitness líkamsræktartæki eru af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta. Púlsmæling Púlsmælifletir eru á handföngum ásamt því að með mælaborðinu fylgir púlsskynjari sem hægt er að festa utan um brjóstið á notanda fyrir sem nákvæmasta mælingu. Auðveld í notkun og umönnun Brautin er afar auðveld í notkun, sama hvort mælaborð er valið. Viðhald við brautina er afar lítið og auðvelt að þrífa t.d. glasahaldara. Quick Start Hlaupabrautin man eftir hraða sem notandi velur fyrir göngu, skokk og hlaup. Þetta minni nýtir hún þegar notaður er quick start eiginleikinn þar sem hægt er að fara beint af stað án þess að ákveða æfingaprógram. Flexdeck fjöðrun Flexdeck fjöðrunarkerfið er það sem gerir Life Fitness brautir mjúkar og góðar fyrir liðamót. Kerfið getur minnkað álag á hné og liðamót um allt að 30%. Helstu mál o.fl. Lágmarks hraði: 0,8 km/h Hámarks hraði: 19 km/h Hámarks halli: 15% Minnsta breyting á halla: 0,5% Glasahaldarar: 2 Innbyggður aukahluta haldari: Já Ergobar: Já Flexdeck fjöðrun: Já, auk þess að vera stillanleg (3 stillingar) Göngu, skokk og hlaupa stillingar: Já Samanbrjótanleg: Nei Stærð (L x B x H): 202cm x 82cm x 155cm Stærð hlaupasvæðis: 153cm x 51cm Þyngd tækis: 155kg Hámarksþyngd notanda: 182kg Mótor: 3 hestafla DC mótor með Magnadrive stýringu Ábyrgð: lífstíð á ramma og LifeSpring dempurum; 10 ár á mótor, 7 ár á pörtum. Tengimöguleikar við afþreyingu: Fer eftir mælaborði

Verslaðu hér

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.