Vörumynd

Malibu brennur

Taylor Jenkins Reid
Það er komið að árlegu sumarlokapartíi Ninu Riva og tilhlökkunin er næstum áþreifanleg enda vilja allir vera í návist Riva-sytkinanna fjögurra. Nina er bæði hæfileikarík brimbrettakona og ofurfyrirsæta og bræðurnir Jay og Hud hafa líka getið sér góðan orðstír, annar er margverðlaunaður brimbrettakappi og hinn mikils metinn ljósmyndar.


Og svo er það krúttlega yngsta systirin. Kit. Systkynin…
Það er komið að árlegu sumarlokapartíi Ninu Riva og tilhlökkunin er næstum áþreifanleg enda vilja allir vera í návist Riva-sytkinanna fjögurra. Nina er bæði hæfileikarík brimbrettakona og ofurfyrirsæta og bræðurnir Jay og Hud hafa líka getið sér góðan orðstír, annar er margverðlaunaður brimbrettakappi og hinn mikils metinn ljósmyndar.


Og svo er það krúttlega yngsta systirin. Kit. Systkynin vekja athygli um heim allan – enda afkomendur stjörnusöngvarans Micks Riva.


Sú eina sem hlakkar ekkert til partísins í ár er Nina sjálf. Hún á nóg með að sætta sig við að atvinnutennisleikarinn eiginmaður hennar er nýfarinn frá henni fyrir aðra tennisstjörnu. Já. Og kannski Hud – því hann á ekki annarra kosta völ en að játa svik sín fyrir Jay, bróðurnum sem hefur staðið honum næst alla tíð. Kit á líka nokkur leyndarmál, til dæmis um gestinn sem hún bað á laun í partíið. Þegar hann skýtur upp kollinum fer allt á annan endann og á miðnætti er partíið algjörlega farið úr böndunum…

Malibu brennur er ógleymanleg fjölskyldusaga.

Verslaðu hér

  • Salka
    Salka bókabúð og útgáfa 776 2400 Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.