Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað , þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum le…

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Nóra dömupeysa
Peysan er prjónuð með gataprjóni og sléttu prjóni, ofan frá og niður, í hring með útaukningu í berustykki.
Þessi peysa er langhlaup en ekki spretthlaup. Það tekur tíma að prjóna hana.
En hún er alveg hrikalega skemmtileg og ekki flókin þó skrefin séu mörg í berustykki.
Efni
Merino 100%
frá Katia.
Einnig hægt að nota
-
Merinocot
frá Lana Gatto og nota prjóna nr. 4
-
Feeling
frá Lana Gatto á prjóna 4,5
Stærðir og magn af garni
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4,5, 40 og 100/120 cm, fer eftir stærð peysu
- Sokkaprjónar nr. 4,5, fyrir stroff á ermi
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XS: 44 cm
S: 46 cm
M: 48 cm
L: 50 cm
XL: 51 cm
XXL: 52 cm
Ummál á bol
XS: 101 cm
S: 112 cm
M: 115 cm
L: 120 cm
XL: 130 cm
XXL: 140 cm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XS: 34 cm
S: 36 cm
M: 38 cm
L: 40 cm
XL: 41 cm
XXL: 42 cm
Ummál á ermum
XS: 32 cm
S: 33 cm
M: 34 cm
L: 36 cm
XL: 40 cm
XXL: 44 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 21 lykkja á prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merino 100%
Stærð | Merino 100% |
XS | 500 gr |
S | 500 gr |
M | 600 gr |
L | 700 gr |
XL | 750 gr |
XXL | 800 gr |
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.