Ooni Koda 12 nær 500°C bökunarhita sem hjálpar þér að elda mat mjög …
Ooni Koda 12 nær 500°C bökunarhita sem hjálpar þér að elda mat mjög hratt. Þú getur eldað pizzur á 60 sekúndum! Og ekki bara pizzur, Ooni Koda 12 er frábær fyrir allar tegundir af kjöti, sjávarrétti, grænmeti eða flatbrauð - Frábær fyrir allan mat sem er betri eldaður á háum hita í stuttan tíma.
Vegna þess hve auðveldur ofninn er í notkun er frábært að nota hann í matarboðum eða skemmtunum með vinum og fjölskyldu. Náðu hópnum saman og gerið ykkar eigin pizzur, eldbakið þær og bjóðið upp á hinar fullkomnu heimabökuðu pizzur, beint fyrir framan augun á þeim.
Einfalt
Svo gott sem tilbúinn til notkunar beint úr kassanum, engin flókin samsetning og ekkert vesen. Það tekur eingöngu sekúndur að setja hann saman. Niður með fæturna, inn með pizza steininn og tengja við gaskútinn.
Færanlegur
Taktu ofninn með þér hvert sem þú vilt, í pizza partí með vinunum eða sumarbústaðinn. Ofninn vegur eingöngu 9.25 kg, og passar á allar svalir, palla, sumarbústaði eða tjaldstæði og getur verið færður til auðveldlega.
Hvað er í kassanum:Ooni Koda ofn
Bökunarsteinn
Ooni Koda Handbók sem inniheldur öryggisleiðbeiningar og girnilegar uppskriftir
30 mbar þrýstijafnari og slanga
Það er hægt að finna öll mál á Ooni Koda 12 hér
Stærð: 40 x 29,5 x 63 cm
Þyngd: 9,25 kg
Ummál kassa: 46 x 28 x 72 cm
Þyngd í kassa: 13,5 kg
Bökunarflötur: 33,7 cm
1 cm bökunarsteinn
Innbyggt FSD (Flame Safety Device) sem lokar fyrir gasið í ofninum ef slökknar á loganum
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.