Vörumynd

PAVO LinseedOil Hörfræolía 1 ltr

Líflaus feldur eða tregða við feldskipti getur verið merki um skort á Omega 3 fitusýrum en Omega 3 er mikilvægur þáttur heilbrigði felds. Hesturinn myndar ekki fitusýruna í eigin efnaskiptum og því þarf að leggja hana til með fóðrun. Pavo LinseedOil hörfræolía er rík af Omega 3 og Omega 6 og hjálpar hestinum þínum að glansa sem aldrei fyrr. Hentar öllum hestum sem þarfnast viðbótar stuðnings…

Líflaus feldur eða tregða við feldskipti getur verið merki um skort á Omega 3 fitusýrum en Omega 3 er mikilvægur þáttur heilbrigði felds. Hesturinn myndar ekki fitusýruna í eigin efnaskiptum og því þarf að leggja hana til með fóðrun. Pavo LinseedOil hörfræolía er rík af Omega 3 og Omega 6 og hjálpar hestinum þínum að glansa sem aldrei fyrr. Hentar öllum hestum sem þarfnast viðbótar stuðnings við feldinn. Eftir tveggja vikna kúr ætti árangurinn ekki að láta á sér standa.

Viðbótarvirkni Omega 3 fitusýra felst í bólgueyðandi eiginleikum sem styðja við ónæmiskerfi hesta þegar á reynir, og yfir vetrarmánuði.

Hörfræolían frá Pavo er kjörin sem viðbót við daglegt heildarfóður. Auk þess að koma meiri glans í feldinn eykur olían upptöku ýmissa vítamína á borð við A, D, E og K.

  • Hörfræolía
  • Heilbrigður og skínandi feldur
  • Rík af Omega 3 og 6 fitusýrum
  • 100% náttúruleg (kaldpressuð)
  • Skjótvirk
  • Kemur í 1 líters brúsa með handhægum skammtara

Ráðlagður skammtur: 6-7 ml/100 kg lífþunga á dag, eða 20 ml fyrir 300 kg hest.

Innihald: 100% hörfræolía.

Greiningarþættir: Hráprótein 0%, hráfita 99,8%, hrátréni 0%, hráaska 0%, Omega-3 55%, Omega 6 15%.

  • Lífland
    Lífland ehf - skrifstofur | 540 1100 540 1100 Fleiri en ein verslun

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.