Vörumynd

RÖKKUR Fullorðinspeysa

MeMe Knitting

RÖKKUR fullorðinspeysa er hneppt golla prjónuð frá hálsmáli. Peysan er stutt og er hugsuð við kjóla, en einfalt er að síkka peysuna og er gert ráð fyrir því í uppskriftinni. Fyrir þrönga peysu er mælt með því að velja stærð sem gefur 5-8 cm aukinn slaka en fyrir víðari peysu er mælt með því að velja þá stærð sem gefur 8-13 cm aukinn slaka (e. Positive Ease) miðað við mælt brjóstmál. Hin full…

RÖKKUR fullorðinspeysa er hneppt golla prjónuð frá hálsmáli. Peysan er stutt og er hugsuð við kjóla, en einfalt er að síkka peysuna og er gert ráð fyrir því í uppskriftinni. Fyrir þrönga peysu er mælt með því að velja stærð sem gefur 5-8 cm aukinn slaka en fyrir víðari peysu er mælt með því að velja þá stærð sem gefur 8-13 cm aukinn slaka (e. Positive Ease) miðað við mælt brjóstmál. Hin fullkomna kjólapeysa.

* Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Babyalpaka frá Kremke

Garn

Babyalpaka frá Kremke (50 gr / 100 metrar) eða Scout frá Kelbourne Woolens (100 gr / 250 metrar)

Það sem þarf
  • 4,0 mm hringprjón
  • 3,5 mm hringprjón
  • 4,0 mm sokkaprjóna
  • 3,5 mm sokkaprjóna
  • Prjónamerki
  • 4-6 tölur
Prjónfesta

10 cm = 21 lykkjur sléttprjón

Almennar upplýsingar

Stærðir Ummál peysu Garn*
XXS 87 cm 350 gr
XS 94 cm 350 gr
S 98 cm 400 gr
M 102 cm 450 gr
L 108 cm 500 gr
XL 119 cm 500 gr
XXL 130 cm 550 gr

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.