Sauðfjárfatan er bætiefnafata sem er sérstaklega ætluð íslensku sauðfé og er auðug af lífsnauðsynlegum stein- og snefilefnum.
Fatan inniheldur AO-mix, blöndu náttúrulegra andoxunarefna sem minnka álag á frumur þegar efnaskipti eru hröð, t.d. á seinnihluta meðgöngu og um burð.
Í samspili við E-vítamín og selen hefur andoxunarblandan jákvæð áhrif á frjósemi, heilbrigði og ón…
Sauðfjárfatan er bætiefnafata sem er sérstaklega ætluð íslensku sauðfé og er auðug af lífsnauðsynlegum stein- og snefilefnum.
Fatan inniheldur AO-mix, blöndu náttúrulegra andoxunarefna sem minnka álag á frumur þegar efnaskipti eru hröð, t.d. á seinnihluta meðgöngu og um burð.
Í samspili við E-vítamín og selen hefur andoxunarblandan jákvæð áhrif á frjósemi, heilbrigði og ónæmiskerfi fjárins.
Innbyrðis hlutfall kalsíum og fosfórs er til þess fallið að minnka líkur á stoðkerfisvandamálum og doða við burð.
Sauðfjárfatan inniheldur engin erfðabreytt hráefni.
Nánari upplýsingar um Sauðfjárfötu hér.
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.