Eftir því sem verkefnum fjölgar er oft eins og sólarhringurinn verði styttri. Þá kann að virðast ómögulegt að komast yfir allt sem þarf að gera.
SKIPULAG
nýtist öllum sem vilja ráðstafa tímanum betur, einfalda verkefni og verða afkastameiri.
Sólrún Diego hefur getið sér gott orð fyrir skilvirkar og skemmtilegar aðferðir við skipulag. Í bókinni kemur hún víða við og fjallar um all…
Eftir því sem verkefnum fjölgar er oft eins og sólarhringurinn verði styttri. Þá kann að virðast ómögulegt að komast yfir allt sem þarf að gera.
SKIPULAG
nýtist öllum sem vilja ráðstafa tímanum betur, einfalda verkefni og verða afkastameiri.
Sólrún Diego hefur getið sér gott orð fyrir skilvirkar og skemmtilegar aðferðir við skipulag. Í bókinni kemur hún víða við og fjallar um allt sem snýr að eigin skipulagi, fjölskyldunnar og heimilisins. Þá er veglegur hluti um veislur og viðburði og hvernig má skipuleggja allt frá litlum matarboðum yfir í brúðkaup.
SKIPULAG
hjálpar þér meðal annars að:
· Útbúa verkefnalista og fylgja þeim
· Einfalda innkaup og matseld
· Viðhalda röð og reglu á heimilinu
· Undirbúa styttri og lengri ferðalög
· Auðvelda flutninga til muna
· Halda skotheldar veislur af öllum stærðum
· Skipuleggja brúðkaup
Sólrún Diego hefur notið mikilla vinsælda fyrir umfjöllun um allt sem tengist heimilishaldi. Fyrsta bók hennar, Heima, sló í gegn árið 2017 og var á meðal söluhæstu bóka ársins.
Höfundur:
Sólrún Diego
Form:
Innbundin
Útgáfuár:
2020
Blaðsíðufjöldi:
176
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.