Myndavélakerfið frá Bláberg, drifið af gervigreind og hannað út frá þörfum viðskiptavina okkar. Staðbundin grunnnotkun fylgir kaupum. Fjaraðgangur um gátt Blábergs er valkvæð þjónusta gegn gjaldi, samkvæmt tilboði.
Sjá Stöðusýn í notkun og kynnast kerfinu →
Stöðusýn er hjartað í Hörpusýn myndavélakerfinu. Lítil en gríðarlega öflug snjalltölva sem tek…
Myndavélakerfið frá Bláberg, drifið af gervigreind og hannað út frá þörfum viðskiptavina okkar. Staðbundin grunnnotkun fylgir kaupum. Fjaraðgangur um gátt Blábergs er valkvæð þjónusta gegn gjaldi, samkvæmt tilboði.
Sjá Stöðusýn í notkun og kynnast kerfinu →
Stöðusýn er hjartað í Hörpusýn myndavélakerfinu. Lítil en gríðarlega öflug snjalltölva sem tekur við myndefni frá öllum myndavélum á staðnum og vinnur alla gervigreind, hreyfiskynjun og manngreiningu, hratt og örugglega á staðnum um leið og hlutirnir gerast. Stöðusýn er viðbót ofan á myndavélarnar sem þú átt nú þegar, hvort sem það eru Hörpusýn eða Léttsýn vélar; ekkert er rifið niður og appið sem fylgdi vélunum virkar áfram.
Á staðnum, innifalið í kaupverði. Vefviðmótið, staðbundin myndgreining, atburðaupptökur og innskráning með aðgangsstýringu fylgja kaupum á kerfinu. Grunnnotkun á staðarnetinu þarf ekki áskrift eða nettengingu.
Fjaraðgangur er valkvæð þjónusta gegn gjaldi. Aðgangurinn fer um gátt Blábergs: Stöðusýn tengir sig út um dulkóðuð göng og þú opnar kerfið í vafra. Fjaraðgangur þarf nettengingu. Við gerum tilboð í fjaraðgang og þjónustu miðað við þínar þarfir. Búnaðinn má kaupa eða leigja eftir samkomulagi.
Bláberg getur annast atvikaleit að beiðni stjórnar eða tilnefnds tengiliðar húsfélagsins. Við förum yfir upptökurnar og finnum viðkomandi myndskeið, svo húsfélagið þurfi ekki sjálft að sinna leitinni. Þjónustan er valkvæð og veitt samkvæmt samkomulagi og tilboði.
Hægt er að bæta við skýrslum og greiningu eftir þörfum:
Við förum yfir hvaða viðbætur henta þér. Innihald þjónustunnar og verð koma fram í tilboði.
Hver Hörpusýn myndavél tekur einnig upp sjálfstætt á innbyggt 128GB SD kort (u.þ.b. 10 til 14 daga upptaka) sem tryggir samfellda vöktun jafnvel þó staðarnetið detti út. Stöðusýnin bætir miðlægri atburðaupptöku og snjallri leit ofan á það.
Stöðusýn vinnur með Hörpusýn og Léttsýn frá Bláberg. Einnig er hægt að tengja myndavélar frá Hikvision, Dahua, Reolink, Amcrest og Uniview sem bjóða staðbundinn myndstraum um ONVIF eða RTSP. Virkni fer eftir gerð og stillingum. Sendu okkur gerð myndavélarinnar og við staðfestum tengingu áður en þú kaupir.
Stöðusýn vinnur með Hörpusýn og Léttsýn myndavélum og POE switch. Ein Stöðusýn þjónar einni staðsetningu (einu netkerfi). Hafðu samband og við aðlögum lausnina að þínum þörfum og aðstæðum.
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.