https://www.youtube.com/watch?v=l5KOeoiw-JM Freestep þrekþjálfinn frá Teeter er frábær fyrir þá sem vilja taka æfingar heima fyrir sem fara vel með liðamót. Hreyfiferillinn í tækinu er úthugsaður en hann leggur minna álag á hné heldur en þrekhjól (þar sem þú þarft að snúa í hringi í stað þess að fara fram/aftur). Með því að bæta hreyfingum með höndum við hreyfinguna eykst áreynslan við æfinguna o…
https://www.youtube.com/watch?v=l5KOeoiw-JM Freestep þrekþjálfinn frá Teeter er frábær fyrir þá sem vilja taka æfingar heima fyrir sem fara vel með liðamót. Hreyfiferillinn í tækinu er úthugsaður en hann leggur minna álag á hné heldur en þrekhjól (þar sem þú þarft að snúa í hringi í stað þess að fara fram/aftur). Með því að bæta hreyfingum með höndum við hreyfinguna eykst áreynslan við æfinguna og hún verður áhrifaríkari. Sætið á þrekþjálfanum er bólstrað og þægilegt en þú getur stillt hæð þess og halla á baki. Handföng eru stillanleg og gripin þannig í laginu að þú hefur val um mismunandi stellingar sem reyna á vöðvana á ólíkan hátt. 13 mótstöðustillingar eru á þjálfanum og auðvelt er að flakka á milli þeirra með snúningstakka sem er fyrir aftan sætið. Mælaborðið sýnir svo allar helstu upplýsingar en það gengur fyrir rafhlöðum og því þarf ekki að stinga tækinu í samband við rafmagn. Loksins er hér á ferðinni tæki sem líkir verulega eftir stóru tækjunum sem finna má í sjúkraþjálfunarstöðvum nema allt nettara og hentugra í heimaþjálfun. Helstu mál o.fl. Kasthjól: 7kg Handföng: 8 lengdarstillingar, mjúk frauðgrip Sæti: Hægt að stilla hæð sætis og halla sætisbaks Lengd: 141cm Breidd: 97cm Hæð: 134cm Þyngd tækis: 49kg Mótstöðustillingar: 13 Æfingatölva sýnir: Tíma, vegalengd, hraða og kaloríubrennslu Hámarksþyngd notanda: 136kg Gengur fyrir: Rafhlöðum (þarf ekki að stinga í samband)