Vörumynd

Þrá eftir frelsi

Beverly Cobain og Jean Larch
Þrá eftir frelsi er bók fyrir þá sem þurft að glíma við ólýsanlegan missi – sjálfsvíg ástvinar.
Höfundar bókarinnar, Beverly Cobain og Jean Larch, brjótast í gegnum þagnarmúrinn, flóknar tilfinningar og smánarbletti með ótrúlegu hugrekki til að færa okkur þennan ljúfa og læknandi leiðarvísi fyrir fjölskyldumeðlimi sem misst hafa ástvin í sjálfsvíg. Sár og heiðarleg frásögn Cobains, samhliða ljúf…
Þrá eftir frelsi er bók fyrir þá sem þurft að glíma við ólýsanlegan missi – sjálfsvíg ástvinar.
Höfundar bókarinnar, Beverly Cobain og Jean Larch, brjótast í gegnum þagnarmúrinn, flóknar tilfinningar og smánarbletti með ótrúlegu hugrekki til að færa okkur þennan ljúfa og læknandi leiðarvísi fyrir fjölskyldumeðlimi sem misst hafa ástvin í sjálfsvíg. Sár og heiðarleg frásögn Cobains, samhliða ljúfum minningum frá öðrum þeim sem hafa þurft að glíma við afleiðingar sjálfsvíga, veitir innsæi inn í heim uppnáms, ótta og sektarkenndar sem fjölskyldumeðlimir í slíkum aðstæðum ganga í gegnum.
Beverly Cobain hefur þurft að takast á við þrjú sjálfsvíg í fjölskyldu sinni, þ.m.t. árið 1994 í tilfelli nákomins frænda hennar Kurt Cobains, söngvara hljómsveitarinnar Nirvana. Hún er starfandi hjúkrunarfræðingur sem sérhæfir sig í sálfræðilegri/geðrænni hjúkrun. Andlát Kurts frænda hennar varð til þess að hún byrjaði að rita hina rómuðu bók When Nothing Matters Anymore: A Survival Guide for Depressed Teens (Þegar ekkert skiptir lengur máli: Hvernig takast á við þunglyndi unglinga).
Jean Larch, S.W.T., er sérfræðingur í áfallahjálp og starfar náið með einstaklingum í sjálfsvígshugleiðingum og fjölskyldumeðlimum sem hafa þurft að takast á við sjálfsvíg. Hún hefur þróað námskeið um hugarheim þeirra sem stríða við sjálfsvígshugleiðingar og þjálfar starfsfólk á geðheilbrigðissviði við ýmsa þætti sem varða sjálfsvíg.

Verslaðu hér

  • Bókafélagið
    Bókafélagið BF útgáfa 615 1122 Fákafeni 11, 108 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.