Vörumynd

þreföld blinispanna MineralB

deBuyer
Þreföldu Mineral B blinispönnuna er einnig hægt að nota til að steikja amerískar pönnukökur, lummur og egg. Hvert hólf er 10 cm að þvermáli.Þrefalda Mineral B stálpannan frá deBuyer er úr 2,5 mm þykku karbonstáli sem er húðað með bývaxi. Bývaxið kemur í veg fyrir að karbonstálið oxíderast og er í senn fyrsta skrefið í tilsteikingu pönnunnar.Við mælum sérstaklega með því að líta yfir bloggfærsluna…
Þreföldu Mineral B blinispönnuna er einnig hægt að nota til að steikja amerískar pönnukökur, lummur og egg. Hvert hólf er 10 cm að þvermáli.Þrefalda Mineral B stálpannan frá deBuyer er úr 2,5 mm þykku karbonstáli sem er húðað með bývaxi. Bývaxið kemur í veg fyrir að karbonstálið oxíderast og er í senn fyrsta skrefið í tilsteikingu pönnunnar.Við mælum sérstaklega með því að líta yfir bloggfærsluna að steikja til pönnu til að sjá hinar ólíku aðferðir steikingarinnar. Markmiðið er í raun að safna náttúrulegri húð á hráan efniviðinn sem gerir pönnuna viðloðunarfría með tímanum. Það er gott að hafa í huga að þeim mun svartari og ljótari sem pannan er, þeim mun betri er hún. Mineral B pannan gengur á öll helluborð, þar með talið spanhellur.Blinispannan hitnar fljótt og hentar í alls kyns matseld, brúnar matvælin og mallar vel. Þegar kemur að þrifum er best að „deglaza-a“ pönnunna að notkun lokinni. Þ.e.a.s. að hella svolitlu vatni í pönnuna yfir hita svo það sem eftir situr losnar. Því næst skal skola pönnuna, þurrka og nudda svolítilli olíu í pönnuna. Það má ekki setja Mineral B pönnuna í uppþvottavél og er mælt gegn því að vaska hana upp með uppþvottalegi.

Verslaðu hér

  • Kokka ehf 562 0808 Laugavegi 47, 101 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.