Mjög fljótlegt og auðvelt að breyta vagninum eftir því sem þörf er á hverju sinni. Hjólatengi og göngudekk fylgja, en hlaupa- og gönguskíðasett er selt sér. Auðvelt að brjóta vagninn saman fyrir flutning eða geymslu. Hallanlegt sæti. Mjög góð stillanleg fjöðrun dregur úr höggum og gerir ferðina þægilegri bæði fyrir börn og foreldra Þægilegt einangrað sæti sem auðvelt er að þrífa. Gott farangursrý…
Mjög fljótlegt og auðvelt að breyta vagninum eftir því sem þörf er á hverju sinni. Hjólatengi og göngudekk fylgja, en hlaupa- og gönguskíðasett er selt sér. Auðvelt að brjóta vagninn saman fyrir flutning eða geymslu. Hallanlegt sæti. Mjög góð stillanleg fjöðrun dregur úr höggum og gerir ferðina þægilegri bæði fyrir börn og foreldra Þægilegt einangrað sæti sem auðvelt er að þrífa. Gott farangursrými, hægt að smella upp fyrir aukið fótapláss þegar hlaupið er. Loftrásir að framan sem auðvelt er að opna til að hámarka loftflæði, sérstaklega þegar regnplast er notað. Stillanlegt handfang sem auðvelt er að aðlaga að hæð foreldra þegar það er gengið/hlaupið. Fjöldi aukahluta fáanlegir til að auka þægindi og sníða vagninn að þörfum barna og foreldra. Afturljós fylgir með til að auka öryggi og sýnileika. Sólhlíf og regnplast fylgja ásamt 5 mm quick release öxull. Ef hjólið sem draga á vagninn er ekki með þannig öxul er hægt að fá fjölda af öxlum og tengjum svo nánast hvaða hjól sem er getur dregið vagninn – ef um 12 mm öxul er að ræða þá þarf að liggja fyrir lengd á öxlinum og grófleikinn á gengjunum. Sjá nánar í þessu SKJALI Það sem Cross hefur umfram fram Lite: Hallanleg sæti, stillanleg fjöðrun, farangursrými, einangrun í sessum. Handbók Thule Chariot Cross