Með snúningshjóli að framan svo auðvelt er að stýra kerrunni. Framhjólinu er auðveldlega hægt að læsa fyrir hlaup eða göngu í grófara undirlagi. Afturdekkin eru 16" og er kerran því afar stöðug. Hægt að brjóta kerruna saman með einu handtaki fyrir geymslu eða flutning. Handbremsa í stýrinu svo auðvelt er að stjórna hraða á mikilli ferð eða í bratta. Tveir skermar sem hægt er að stilla í mismunand…
Með snúningshjóli að framan svo auðvelt er að stýra kerrunni. Framhjólinu er auðveldlega hægt að læsa fyrir hlaup eða göngu í grófara undirlagi. Afturdekkin eru 16" og er kerran því afar stöðug. Hægt að brjóta kerruna saman með einu handtaki fyrir geymslu eða flutning. Handbremsa í stýrinu svo auðvelt er að stjórna hraða á mikilli ferð eða í bratta. Tveir skermar sem hægt er að stilla í mismunandi stöður. Sé hann alveg frammi ver hann börnin vel fyrir veðri og vindum. Stillanlegur halli á sæti sem legst alveg niður. ATH að hægt er að fá strappa til að halda sætinu ennþá uppréttara. Öflugt fjaðrakerfi gerir ferðina þægilegri fyrir alla og minnkar höggið fyrir börnin í hrjúfu undirlagi. Auðvelt að stilla handfang að hæð þess sem keyrir kerruna. Rúmgott farangurshólf undir sætum sem hægt er að loka vel með rennillás. Örugg og þægileg sæti með 5 punkta beltum og góðu loftflæði. Gluggar á hvorum skerm með segulhlíf svo hægt sé að hafa auga með börnunum án þess að trufla þau með látum. Aukinn sýnileiki með endurskini á hjólum og skermum. Hægt að nota frá fæðingu fyrir eitt barn með vagnstykki eða bílstólafestingum (selst sér). Hægt er að fjarlægja sæti og skerm af kerrugrindinni.