Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.
Öll hjólin frá Tomcat SNI eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 10 til 12 vikur frá pöntun.
Til að bóka prufu og mátun á hjóli vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is
Tomcat þríhjólin eru framleidd í Bretlandi. Mik…
Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.
Öll hjólin frá Tomcat SNI eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 10 til 12 vikur frá pöntun.
Til að bóka prufu og mátun á hjóli vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is
Tomcat þríhjólin eru framleidd í Bretlandi. Mikið af yfir 30 nýjungum sem Tomcat hefur kynnt á markað hafa orðið að framleiðslustöðlum á heimsvísu.
Hjólin frá Tomcat SNI eru einstök að því leitinu til að þau eru sérsmíðuð og aðlöguð sérstaklega með þarfir notandans í huga og eru því frábrugðin hefðbundnum þríhjólum þar sem notandinn þarf að aðlaga sig að hjólinu.
Tomcat Fizz þríhjólið er hannað til að henta einstaklingum með ýmsar fatlanir og færniskerðingar er öruggt til notkunar utandyra, við ýmsar fjölskyldu athafnir og auðvelt í flutning.
Fizz þríhjólið er fyrir notendur sem eru með takmarkaðar og allt að mikilla fatlana og/eða færniskerðinga og hentar notendum frá 4 ára allt uppí 16+ ára.
Hjólið er stílhreint og flott, eins gíra með annað hvort föstu eða tvídrifi. Grunnútfærsla hjólsins vegur aðeins 14kg en þrátt fyrir það afar sterkt og 100% sérsmíðað og samsett í Bretlandi.
Fizz er fyrsta sérhæfða þríhjólið í heiminum með aðstoðarmannstýring "Carer Control™" sem stýrt er af aðstoðarmanni og gefur honum færi á að stjórna hjólinu alveg, tvískiptan ramma, "Trailer-Trike™" togstöng og "Swivel Saddle™" snúnings hnakk.
Fizz þríhjólið er hannað frá grunni með það að leiðarljósi að notendur með fatlanir, færniskerðingar og sjónskerðingar eru öruggir í öllum kringumstæðum og geta þannig notið útiveru, frelsis og bættra lífsgæða.
Með tvískiptum ramma er auðvelt að taka hjólið í sundur til að flytja á milli staða eða til geymslu. Einnig er í boði hraðtengi á afturhjól svo hægt sé að taka þau af til að auðvelda flutning.
Hægt er að breyta hjólinu í hjólavagn með "Trailer-Trike™" togstönginni á örfáum sekúndum. Með Trailer-Trike™ getur notandinn notið þess að hjóla með og þar af auki hvílt sig á milli.
Heimasíða framleiðanda
Eiginleikar:
Valmöguleikar:
Nýsköpun
Fizz þríhjólið er hjólið sem Tomcat SNI byggðist á. Það var fyrsta sérhæfða þríhjólið í heiminum til þess að bjóða uppá aðstoðarmannstýringu
Carer Control
™
sem stýrt er af aðstoðarmanni og gefur honum færi á að stjórna hjólinu alveg. Fizz vegur aðeins 14kg og er auðvelt að taka í sundur með tvískiptum ramma.
Hvert Fizz þríhjól er hannað og sérsmíðað fyrir notandann því eru mælingar og færnismat ávalt upphaf pöntunarferilsins. Fyrst þegar málin ásamt færnismati og mati á þeim stuðningsbúnaði sem þörf er á liggur fyrir er hafist handa við að smíða hjólið.
Öryggi og stjórnun
Aðstoðarmannastýring og aðstoðarmannabremsa gerir foreldrum eða aðstoðarmanni kleift að bæði stýra og bremsa ef þess er þörf. Stýrishandfangið og aðstoðarmanna bremsubandið eru auðveldlega sett á og tekið af. Með þessari stýringu er auðvelt að hafa yfirumsjón með notandanum og á sama tíma veita frelsi til þess að hjóla sjálfstætt.
Flutningur og geymsla
Fizz hjólið er létt og hægt að fá með tvískiptum ramma sem notast við "
Two Piece Frame™
" kerfið sem er einstakt kerfi frá Tomcat til að taka ramman í sundur og setja hjólið saman á ný. Hjólið er því frábrugðið öðrum yfirleitt þyngri og fyrirferðameiri sérhæfðum þríhjólum sem eru á markaði. Á auðveldan hátt er því hægt að taka hjólið í sundur til flutning eða til geymslu.
Bætt aðgengi
Snúnings hnakkurinn "
Swivel Saddle
™" auðveldar notandanum aðgengi að hjólinu. Hægt er að snúa sætinu til hliðar með einu handtaki. Í sameiningu með Transfer step™ Þrepinu er leikur einn fyrir notandann að komast af og á hjólið jafnvel án aðstoðar.
Ótal möguleikar
Hægt er að breyta hjólinu í hjólavagn með "Trailer-Trike™" togstönginni á örfáum sekúndum. Með Trailer-Trike™ getur notandinn notið þess að hjóla með og þar af auki hvílt sig á milli.
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.