Vörumynd

Tomcat Silver Bullet

Mobility ehf.

Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.

Öll hjólin frá Tomcat SNI eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 10 til 12 vikur frá pöntun.

Til að bóka prufu og mátun á hjóli vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is

Tomcat þríhjólin eru framleidd í Bretlandi. Mik…

Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.

Öll hjólin frá Tomcat SNI eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 10 til 12 vikur frá pöntun.

Til að bóka prufu og mátun á hjóli vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is

Tomcat þríhjólin eru framleidd í Bretlandi. Mikið af yfir 30 nýjungum sem Tomcat hefur kynnt á markað hafa orðið að framleiðslustöðlum á heimsvísu.

Hjólin frá Tomcat SNI eru einstök að því leitinu til að þau eru sérsmíðuð og aðlöguð sérstaklega með þarfir notandans í huga og eru því frábrugðin hefðbundnum þríhjólum þar sem notandinn þarf að aðlaga sig að hjólinu.

Tomcat Silver Bullet þríhjólið er hannað til að henta einstaklingum með ýmsar fatlanir og færniskerðingar sem og sjálfstæðari notendum. Hjólið er öruggt til notkunar utandyra, við ýmsar fjölskyldu athafnir og auðvelt í flutning.

Tomcat Silver Bullet hentar sérstaklega fyrir eldri börn og fullorðna, hjólið er hentugt fyrir notendur sem eru frá 145cm - 198cm að hæð.

Lágt, bólstrað sæti Silver Bullet tryggir þægilegt og auðvelt aðgengi, auk þess sem hægt er að nota Sliding og/eða Swivel Seat™ valkostina.

Heimasíða framleiðanda

Eiginleikar:

  • Fríhjóla, fjölgírað þríhjól
  • 8 gíra Shimano Inter8 lokað Hub drif
  • Mismunadrif á afturhjólum
  • Silver Bullet hentar notendum sem eru frá 145cm - 198cm að hæð
  • Sérsmíðað fyrir notandann og aðlagað eftir þörfum hans
  • Stillanlegt sjálfréttandi stýri
  • Lítið sem ekkert viðhald
  • Stöðubremsa sem auðveldar notanda að fara af og á hjólið
  • Geometrísk hönnun hjólsins styður við rétta líkamsbeitingu

Valmöguleikar:

  • Tvískiptur rammi sem hæg er að taka í sundur á örfáum sékundum
  • Snúnings sæti " Swivel Seat " fyrir auðveldara aðgengi
  • Transfer step™ Þrep sem auðveldar notanda að komast af og á hjólið
  • Trailer Trike™ breytir hjólinu í hjólavagn með einu handtaki
  • Griphanskar fyrir aukið grip
  • Í boði eru hefðbundnir pedalar, pedalar með böndum, pedalaskór með eða án banda eða pedalaskór með spelkum.
  • Belti og/eða klofkýll fyrir mjaðmarstuðning
  • Ýmsar bakstoðir og sæti í boði, belti og/eða hliðararmar/púðar fyrir búk og hrygg.
  • Mjaðma belti og/eða bolbelti eða mittis stuðningur
  • Höfuðpúði eða höfuðpúði með hliðarpúðum sem styður við höfuð og hnakka
  • Flöskuhaldari, karfa að aftan með festingum og aurhlífar
  • "Quick Release rear Wheels" hraðtengi á afturhjól svo hægt sé að taka þau af
  • "Bionic Buddy™" rafdrifkerfi stjórnað af notanda eða aðstoðarmanni (3km/klst)
  • 36v Rafdrif/pedalaaðstoð 25km/klst með 9Ah eða 14Ah rafhlöðu
  • Auka 9Ah eða 14Ah rafhlaða

Sérsmíðað að þörfum notandans
Hvert Silver Bullet þríhjól er hannað og sérsmíðað fyrir notandann því eru mælingar og færnismat ávalt upphaf pöntunarferilsins. Fyrst þegar málin ásamt færnismati og mati á þeim stuðningsbúnaði sem þörf er á liggur fyrir er hafist handa við að smíða hjólið.

Öryggi og stjórnun
Aðstoðarmannastýring og aðstoðarmannabremsa gerir foreldrum eða aðstoðarmanni kleift að bæði stýra og bremsa ef þess er þörf. Stýrishandfangið og aðstoðarmanna bremsubandið eru auðveldlega sett á og tekið af. Með þessari stýringu er auðvelt að hafa yfirumsjón með notandanum og á sama tíma veita frelsi til þess að hjóla sjálfstætt.

Flutningur og geymsla
Silver Bullet hjólið er létt og hægt að fá með tvískiptum ramma sem notast við " Make and Break ™" kerfið sem er einstakt kerfi frá Tomcat til að taka ramman í sundur sem tengir saman gírastýringuna á stýrinu aftur þegar hjólið er sett saman á ný. Hjólið er því frábrugðið öðrum yfirleitt þyngri og fyrirferðameiri sérhæfðum þríhjólum sem eru á markaði. Einnig er boði hraðtengi á afturhjól svo hægt sé að taka þau af til að auðvelda flutning. Á auðveldan hátt er því hægt að taka hjólið í sundur til flutning eða til geymslu þegar á þarf að halda.

Bætt aðgengi
Snúnings sætið " Swivel Seat " auðveldar notandanum aðgengi að hjólinu. Hægt er að snúa sætinu til hliðar með einu handtaki. Í sameiningu með sæti á sleða "Sliding seat " er leikur einn fyrir notandann að komast af og á hjólið jafnvel án aðstoðar.

Ótal möguleikar
Hægt er að breyta hjólinu í hjólavagn með "Trailer-Trike™" togstönginni á örfáum sekúndum. Með Trailer-Trike™ getur notandinn notið þess að hjóla með og þar af auki hvílt sig á milli.

Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.

Verslaðu hér

  • Mobility ehf 578 3600 Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabæ

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.