Á fallegum sumardegi er Charlotte, móðir tveggja ungra barna, á leið úr ræktinni í skólann þar sem hún vinnur í friðsælum smábæ á eyjunni Fjóni. Nokkrum mínútum síðar er hún horfin sporlaust á þessari stuttu leið.
Þegar Charlotte hefur ekki skilað sér morguninn eftir verður fljótlega ljóst að glæpur hefur verið framinn. Á nokkrum dögum er öll eyjan undirlögð í rannsókninni og fólk fer að hal…
Á fallegum sumardegi er Charlotte, móðir tveggja ungra barna, á leið úr ræktinni í skólann þar sem hún vinnur í friðsælum smábæ á eyjunni Fjóni. Nokkrum mínútum síðar er hún horfin sporlaust á þessari stuttu leið.
Þegar Charlotte hefur ekki skilað sér morguninn eftir verður fljótlega ljóst að glæpur hefur verið framinn. Á nokkrum dögum er öll eyjan undirlögð í rannsókninni og fólk fer að halda sig innan dyra af ótta við að verða næsta fórnarlamb. Lögregluforingjarnir Liam og Dea eru í kapphlaupi við tímann að reyna að leysa málið þar sem fólk deyr kvalafullum dauðdaga án þess að lögreglan fái við nokkuð ráðið.
Hér leggja saman krafta sína tveir höfundar í fremstu röð.
Sara Blædel er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Dana og koma bækur hennar út víða um heim. Og bækur hennar fara ævinlega rakleitt efst á metsölulista á Íslandi.
Mads Peder Nordbo vakti mikla athygli með bók sinni Flúraða konan sem kom út á íslensku fyrir nokkrum árum.
„Spennandi glæpasaga sem flæðir vel, plottið er margþætt og persónugalleríið fjölskrúðugt. Ég mæli eindre gið með Upplausn!“ Yrsa Sigurðardórttir
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.