Vörumynd

WEBER FLOOR 4150 FINE FLOW (25KG) - Alhliða flot

Weber
Weber_4150_isl Tækniblaðweber_floor_4150_fine_flow TækniblaðWeber floor 4150 fine flow er alhliða flot sem hentar á flesta staði. Efnið er ákaflega auðvelt í meðförum. Þykktarsvið 4-30mm. Vatn i 25kg poka er 5,25L. Göngufært eftir 2-4 klst. Má yfirleggja með flísum eftir 24 klst, en parket og dúk eftir 1-3 vikur eftir þykkt. Hentar á gólfsvæði þar sem álag er í meðallagi.EfnislýsingWeber 4150 Fin…
Weber_4150_isl Tækniblaðweber_floor_4150_fine_flow TækniblaðWeber floor 4150 fine flow er alhliða flot sem hentar á flesta staði. Efnið er ákaflega auðvelt í meðförum. Þykktarsvið 4-30mm. Vatn i 25kg poka er 5,25L. Göngufært eftir 2-4 klst. Má yfirleggja með flísum eftir 24 klst, en parket og dúk eftir 1-3 vikur eftir þykkt. Hentar á gólfsvæði þar sem álag er í meðallagi.EfnislýsingWeber 4150 Fine Flow er ódýrt, dælanlegt hraðharðnandi flotefni sem er auðvelt í meðförum. Ekki er þörf á frekari yfirborðsmeðhöndlun, svo sem slípun eða fínspörtlun. Efnið er þurrefni í 25kg pokum sem er blandað vatni á byggingarstað. Stuttur þurrktími leyfir lögn á dúk eða parketi eftir 7-10 daga. ( Fer þó eftir þykkt, loftraka, hitastigi og öðrum aðstæðum.) Flísar má leggja með sementsbundnum límum daginn eftir flotun. Weber 4150 er vottað af óháðum aðila sem er SP Sveriges Forsknings och Provningsinstitut, P og CE merkt og uppfyllir kröfur HusAMA um flotefni.NotkunarsviðWeber 4150 hentar í íbúðarhúsnæði, á skrifstofum, iðnaðargólfum, og þar sem álag er í meðallagi.UndirvinnaUndirlagið skal vera hreint og laust við lausan múr, sementslamma, raka, fitu og önnur óhreinindi, og þarf að þola togkraft allt að 1,0 MPa. Ef flota á yfir lakkað gólf, skal slípað yfir með sandpappírs-slípivél og lakkið mattað. Grunnið með Weber Floor 4716 1:1, stráið þurru efni í blautan grunninn og kústið saman. Látið þorna og þá er undirlagið tilbúið undir flotun.GrunnurGrunna skal með Weber Floor 4716 og blanda hann 1 hluti grunnur og 3 hlutar vatn. Sjá leiðbeiningar um notkun við mismunandi aðstæður.Blöndun og lögnVatnsmagn er 21% eða 5,25 lítrar í 25 kg. poka. Blandið saman með hæggengri borvél þar til viðunandi seigju er náð. Ef dæla á efninu, leitið þá upplýsinga hjá söluaðila. Mælið flotið í efninu (samkv. SS 923519) með hring sem er 50x22mm. Skal þá flotið í efninu vera 155-160mm. Athugið alltaf við flotprufu hvort efnið sé nægjanlega vel hrært.ÁsetningFlotinu er dælt með þar til gerðri múr/flotdælu. Efnið er lagt í þunnu lagi fram og til baka eftir gólfinu. Hámarksbreidd á svæði er 8m. Á breiðari svæðum þarf að skilja að með svamplista. Draga þarf tenntan spaða eftir yfirborðinu til að losa um loft og koma í veg fyrir loftbólur. Ef þarf að flota í tveimur umferðum, þurfa að líða ca 12klst á milli umferða.Varan er samþykkt vara í SCDP (Supply Chain Declaration Portal Svansins)í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur). 

Verslaðu hér

  • Múrbúðin ehf 412 2500 Fleiri en ein verslun

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.