Hafnargötu 57, 230 Reykjanesbæ
Kennitala: 611276-0289
611276-0289
VERKÍS er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Verkís býr yfir sérfræðiþekkingu sem spannar allar þarfir framkvæmdaaðila frá fyrstu hugmynd til loka fjárfestingarverkefnis. Að auki býður Verkís rekstraraðilum þjónustu við margháttuð rekstrar- og viðhaldsverkefni. Verkís starfar samkvæmt vottuðu gæða-, umhverfis- og öryggiskerfi.
Verkís rekur uppruna sinn til ársins 1932 og er því elsta verkfræðistofa landsins. Hjá Verkís starfa yfir 300 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís leggur áherslu á að veita vandaða og faglega þjónustu sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum.
Höfuðstöðvar Verkís eru í Ofanleiti 2, Reykjavík en að auki rekur Verkís starfsstöðvar út um allt land.