Vörumynd

Ferðamál úr hrísgrjónaskalli - ýmsar gerðir Little Miss Sunshine

Huskup
Huskup ferðamálið er búið til úr hrísgrjónaskalli, sem er ysta lag hrísgrjóna og fellur til við framleiðslu þeirra. Hugmyndin á bak við ferðamálið var að búa til algjörlega plastlausa vöru, koma í veg fyrir notkun á einnota kaffimálum og nota afgangsafurð sem endaði annars í landfyllingu í eitthvað nytsamlegt. Hrísgrjónaskall er sterkt og hefur stutta trefjaþræði sem veita viðnám við raka - og 12…
Huskup ferðamálið er búið til úr hrísgrjónaskalli, sem er ysta lag hrísgrjóna og fellur til við framleiðslu þeirra. Hugmyndin á bak við ferðamálið var að búa til algjörlega plastlausa vöru, koma í veg fyrir notkun á einnota kaffimálum og nota afgangsafurð sem endaði annars í landfyllingu í eitthvað nytsamlegt. Hrísgrjónaskall er sterkt og hefur stutta trefjaþræði sem veita viðnám við raka - og 125 milljónir tonna af því er hent árlega. Til þess að varan væri 100% plastlaus var ekki notast við melamine plastefnið til þess að binda hrísgrjónaskallið saman og móta úr því bolla, heldur var náttúruleg sterkja notuð. Huskup ferðamálin hafa uppfyllt öll ströngustu framleiðsluviðmið í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Þau innihalda ekkert BPA, eiturefni, melamine eða þungamálma. Þau eru vottuð jarðgeranleg samkvæmt evrópska viðmiðinu EN13432. Ferðamálið tekur 350 ml. Kemur í stað einnota kaffibolla Efni Hrísgrjónaskall og sílíkon. Laus við plast, PBA, melamine, polypropylene, eiturefni og málma Umbúðir Pappi Upprunaland Bretland Meðhöndlun / Þrif Má fara í efri grindina á uppþvottavélinni, en best er að handþvo málið. Málinu er ekki ætlað til að halda drykk heitum í langan tíma. Flokkast sem Flokkast sem almennt rusl, umbúðirnar sem pappi

Verslaðu hér

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt