Vörumynd

Fjórða iðnbyltingin

Almenna bókafélagið

Fjórða iðnbyltingin stendur nú yfir og framundan eru miklar breytingar. Róbotar taka yfir störf, gervigreind leysir ráðgjafa af hólmi og drónar munu ferja fólk og varning. Tækni framtíðarinnar er í senn heillandi, ógnvænleg og sveipuð óvissu.

Hér fer Ólafur Andri Ragnarsson, tölvunarfræðingur og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, yfir iðnbyltingar fyrri tíma og ræðir við hverju megi …

Fjórða iðnbyltingin stendur nú yfir og framundan eru miklar breytingar. Róbotar taka yfir störf, gervigreind leysir ráðgjafa af hólmi og drónar munu ferja fólk og varning. Tækni framtíðarinnar er í senn heillandi, ógnvænleg og sveipuð óvissu.

Hér fer Ólafur Andri Ragnarsson, tölvunarfræðingur og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, yfir iðnbyltingar fyrri tíma og ræðir við hverju megi búast af þeirri fjórðu. Undanfarin ár hefur Ólafur Andri kennt námskeiðið „Ný tækni“ við Háskólann í Reykjavík sem þykir sérlega áhugavert. Hann byggir þessa stórfróðlegu og læsilegu bók á þekkingu bæði samtímamanna og margra hugsuða fyrri tíma.

Hér er sérlega áhugaverð bók fyrir alla sem hafa til dæmis áhuga á tæknisögu, sjálfkeyrandi bílum, drónum, Netflix, Uber, örlögum Nokia, framgangi Apple og nýjungum hjá Google. Þessi bók er veisla fyrir tæknisinnað fólk og almenna áhugamenn.

Verslaðu hér

  • Bókafélagið
    Bókafélagið BF útgáfa 615 1122 Fákafeni 11, 108 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt