Vörumynd

Loop Dellik Vöðlujakki (Dömu) M

Loop
Eftir langa meðgöngu hefur Loop nú komið með nýjan vöðlujakka á markað, sérhannaðan fyrir konur. Þessi frábæra flík er hönnuð frá grunni af veiðikonum og er notagildi, útlit og snið jakkans því eins og best verður á kosið. Dellik er hannaður til að standa af sér hverskonar veður enda algjörlega vatnsheldur og með einstaka öndun. Samstarf Loop við Sympatex hefur gert þeim kleift að framleiða vöðlu…
Eftir langa meðgöngu hefur Loop nú komið með nýjan vöðlujakka á markað, sérhannaðan fyrir konur. Þessi frábæra flík er hönnuð frá grunni af veiðikonum og er notagildi, útlit og snið jakkans því eins og best verður á kosið. Dellik er hannaður til að standa af sér hverskonar veður enda algjörlega vatnsheldur og með einstaka öndun. Samstarf Loop við Sympatex hefur gert þeim kleift að framleiða vöðlujakka á mun umhverfisvænni hátt en áður hefur tíðkast. Dellik vöðlujakkinn fæst í þremur litum og fimm stærðum. Dellik er úr afar slitsterku efni sem er um leið mjög teygjanlegt og endingargott. Að framan eru þrír renndir brjóstvasar auk áhaldagorms fyrir losunartöng eða taumaklippur. Á hliðum eru fóðraðir vasar fyrir hendur með vatnsheldum YKK rennilásum. Jakkinn er með stillanlegri hettu sem nota má á tvo vegu, bæði eina og sér eða yfir derhúfu. Þá er vatnsheld lokun á ermum frábær lausn til þess að varna vatni leið upp í ermarnar þegar kastað er eða fiski er sleppt. Samtímis því að við njótum útiverunnar styðjum við jafnframt náttúruvernd. Ólíkt hefðbundnum vatnsheldum veiðijökkum úr öndunarefni er  Dellik - jakkinn úr endurvinnanlegu efni og framleiddur án þess að nota nokkur eyðandi efni eins og ePTFE eða PTC. Við framleiðslu á SymPatex filmunni er notað 90% minna vatn en framleiðslu keppinautanna.

Verslaðu hér

  • Veiðiflugur 527 1060 Langholtsvegi 111, 104 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt