Vörumynd

Grapat mandala - blóm

Regnboginn verslun

Í þessu setti eru 36 viðarhlutir sem minna á falleg sumarblóm, þau eru máluð létt í þremur mismunandi bleikum tónum. Þetta sett er frábær viðbót í hvers kyns leik þar sem ímyndunaraflið fær að ráða för. H ægt að nota til að telja, flokka, leggja saman og draga frá ásamt því að nota þá með öðrum leikföngum úr opnum efnivið, möguleikarnir eru endalausir. Svo er hægt að nota þessi sett til að …

Í þessu setti eru 36 viðarhlutir sem minna á falleg sumarblóm, þau eru máluð létt í þremur mismunandi bleikum tónum. Þetta sett er frábær viðbót í hvers kyns leik þar sem ímyndunaraflið fær að ráða för. H ægt að nota til að telja, flokka, leggja saman og draga frá ásamt því að nota þá með öðrum leikföngum úr opnum efnivið, möguleikarnir eru endalausir. Svo er hægt að nota þessi sett til að fá útrás fyrir sköpunarkraft sinn og búa til mandölur á gólfi, borði eða á viðarbakka. Að búa til mandölur getur haft einstaklega róandi áhrif á mann og hentar fyrir börn sem fullorðna. Hægt er að blanda mandölusettum saman og búa til falleg listaverk.

Grapat leikföng eru hönnuð til að kveikja á náttúrulegri löngun barna til að leika sér.  Þetta eru einföld leikföng úr opnum efnivið til að börnin upplifi frelsi í leik. Grapat leikföng eru afar vönduð, handgerð úr við frá sjálfbærum skógum og handmáluð með eiturefnalausri vatnsmálningu.

Blómin eru 3 cm í þvermál og henta ekki fyrir börn undir 3 ára.

Verslaðu hér

  • Regnboginn verslun
    Regnboginn verslun ehf 866 9788 Mörkinni 3, 108 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt