Vörumynd

grillpanna La Lyonnaise

deBuyer
La Lyonnaise grillpannan er einnig gjarnan kölluð kastaníupanna. Pannan er hugsuð til þess að steikja t.a.m. grænmeti á grilli. Járnið í la Lyonnaise pönnunum frá deBuyer hefur verið meðhöndlað til þess að koma í veg fyrir oxun. Pönnurnar eru úr 1 mm þykku blástáli (þ.e. þunnu járni) sem þarf að steikja til fyrir notkun. Því henta pönnurnar best á gashellur þar sem snöggar hitabreytingar geta ver…
La Lyonnaise grillpannan er einnig gjarnan kölluð kastaníupanna. Pannan er hugsuð til þess að steikja t.a.m. grænmeti á grilli. Járnið í la Lyonnaise pönnunum frá deBuyer hefur verið meðhöndlað til þess að koma í veg fyrir oxun. Pönnurnar eru úr 1 mm þykku blástáli (þ.e. þunnu járni) sem þarf að steikja til fyrir notkun. Því henta pönnurnar best á gashellur þar sem snöggar hitabreytingar geta verpt botni pönnunnar. La Lyonnaise pönnurnar eru bestar í snöggsteikingar á háum hita. T.a.m. að brúna og steikja kjöt, grænmeti og egg. Við mælum sérstaklega með því að líta yfir bloggfærsluna að steikja til pönnu til að sjá hinar ólíku aðferðir steikingarinnar. Markmiðið er í raun að safna náttúrulegri húð á hráan efniviðinn sem gerir pönnuna viðloðunarfría með tímanum. Það er gott að hafa í huga að þeim mun svartari og ljótari sem pannan er, þeim mun betri er hún.

Verslaðu hér

  • Kokka ehf 562 0808 Laugavegi 47, 101 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt