Vörumynd

Vítislogar - Heimur í stríði 1939-1945 kilja

Max Hastings

Heimsstyrjöldin síðari kostaði um sextíu milljónir manna lífið – að meðaltali tuttugu og sjö þúsund manns á dag. Milljónir hlutu ævarandi líkamlegan og andlegan skaða. Heilu borgirnar og landsvæðin voru rústir einar.
Í fjóra áratugi hefur Max Hastings rannsakað og skrifað um ólíka þætti þessa hildarleiks. Í þessari bók dregur hann saman rannsóknir sínar í e…

Heimsstyrjöldin síðari kostaði um sextíu milljónir manna lífið – að meðaltali tuttugu og sjö þúsund manns á dag. Milljónir hlutu ævarandi líkamlegan og andlegan skaða. Heilu borgirnar og landsvæðin voru rústir einar.
Í fjóra áratugi hefur Max Hastings rannsakað og skrifað um ólíka þætti þessa hildarleiks. Í þessari bók dregur hann saman rannsóknir sínar í eitt heildarverk sem fengið hefur frábærar viðtökur og þykir varpa nýju ljósi á blóðugustu ár tuttugustu aldar.
Hvernig var að upplifa þennan tíma? Hastings lýsir persónulegum afleiðingum styrjaldarinnar en gætir þess jafnframt að missa ekki sjónar á hinu stóra herfræðilega og alþjóðlega samhengi. Úr verður æsispennandi en djúphugul frásögn af ógnvænlegustu árum mannkynssögunnar.


Verslaðu hér

  • Salka
    Salka bókabúð og útgáfa 776 2400 Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt