Vörumynd

Endurminningar Guðrúnar Borgfjörð

Guðrún Borgfjörð
Minningar Guðrúnar Borgfjörð veita fágæta innsýn í líf alþýðukonu sem ólst upp í Reykjavík á seinni hluta 19. aldar. Hér er brugðið upp ljóslifandi mynd af æskuheimili Guðrúnar og lesandanum veitt innlit í hversdagslíf hennar, jafnt gleði og sorgir, þeirra tíma skemmtanir og ferðalög innanlands og utan. Minningarnar eru ekki síður athyglisverðar fyrir þær sakir að Guðrún var vel kunnug ýmsu mer…
Minningar Guðrúnar Borgfjörð veita fágæta innsýn í líf alþýðukonu sem ólst upp í Reykjavík á seinni hluta 19. aldar. Hér er brugðið upp ljóslifandi mynd af æskuheimili Guðrúnar og lesandanum veitt innlit í hversdagslíf hennar, jafnt gleði og sorgir, þeirra tíma skemmtanir og ferðalög innanlands og utan. Minningarnar eru ekki síður athyglisverðar fyrir þær sakir að Guðrún var vel kunnug ýmsu merkisfólki síns samtíma, konum sem körlum, sem síðar hefur öðlast sess í Íslandssögunni. Hér er einnig að finna frásagnir af sögulegum atburðum, svo sem þjóðhátíðinni 1874 og þjófnaðinum í Laugarnesstofu, og samtímalýsingu á fjaðrafokinu í kringum fréttirnar um Katanesdýrið.

Verslaðu hér

  • Salka
    Salka bókabúð og útgáfa 776 2400 Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt