Vörumynd

Lían

Chen Jiang Hong

Ló er einbúi og fiskimaður. Heimili hans er djúnkan hans. Hann er dapur, fiskur er sjaldséður þetta árið. Dag einn biður fjörgömul kona hann að róa með sig yfir vatnið, í þakkarskyni gefur hún honum nokkur lótusfræ.

Þessi fræ eru sérstök, þau eru tekin úr drekakjafti. Ló sáir þeim, og um leið kemur upp lótusakur á einni nótt. Inni á milli blaða eins blómsins birtist lítil stúlka. Hún heitir …

Ló er einbúi og fiskimaður. Heimili hans er djúnkan hans. Hann er dapur, fiskur er sjaldséður þetta árið. Dag einn biður fjörgömul kona hann að róa með sig yfir vatnið, í þakkarskyni gefur hún honum nokkur lótusfræ.

Þessi fræ eru sérstök, þau eru tekin úr drekakjafti. Ló sáir þeim, og um leið kemur upp lótusakur á einni nótt. Inni á milli blaða eins blómsins birtist lítil stúlka. Hún heitir Lían. Hún er líka sérstök. Hún er með sérgáfur. Og vegna þeirra er hún í hættu.

Chen Jiang Hong fæddist árið 1963 í stórri borg í Norður-Kína. Hann er málari og myndskreytir. Hann stundaði nám við myndlistarháskóla Bejing og Parísar. Hann hefur búið og unnið í París síðan 1987.

Í sögum hans blandast fornar þjóðsögur, menning og saga Kína við tilfinningalíf og tilveruspurningar nútímabarna. Hann notar hefðbundna tækni – blekmálun, án undirbúningsskissu, á hríspappír eða silki – við nútímahönnun á bókum með myndskreytingu fyrir undirstöðu.

Verslaðu hér

  • Salka
    Salka bókabúð og útgáfa 776 2400 Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt