Vörumynd

HÆNA Sigurjón Pálsson

Epal
Frá því að maðurinn hóf akuryrkju hefur hænan fylgt honum og verið ómissandi þáttur í lífi hans. Ómögulegt er að hugsa sér lífið án hennar, því þótt mildilegt gaggið heyrist ekki í þéttbýli lengur, né ábúðarfullt gal hanans á morgnana, þá finnum við fyrir notalegri návist hennar með því sem hún leggur okkur til dag hvern. Þessi huggulegi fugl sem áður fyrr einkenndi hvert heimili með nærveru sinn…
Frá því að maðurinn hóf akuryrkju hefur hænan fylgt honum og verið ómissandi þáttur í lífi hans. Ómögulegt er að hugsa sér lífið án hennar, því þótt mildilegt gaggið heyrist ekki í þéttbýli lengur, né ábúðarfullt gal hanans á morgnana, þá finnum við fyrir notalegri návist hennar með því sem hún leggur okkur til dag hvern. Þessi huggulegi fugl sem áður fyrr einkenndi hvert heimili með nærveru sinni og iðjusemi: taktöstu goggi eftir æti í næsta umhverfi þess, launaði öryggið sem vinskapurinn við fjölskylduna veitti henni, með fæðuöryggi. Enn þann dag í dag gætir nærveru hennar í híbýlum okkar og veitir sömu notalegu hughifin. Hönnun: Sigurjón Pálsson Athugið að þessi vara er til í tveimur litum, svörtum og hvítum. Ef pantað er á netinu þá þarf að taka fram litinn í skilaboðum.

Verslaðu hér

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar og villur. Upplýsingar á síðu söluaðila gilda.

Já notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Já uppfært persónuverndarstefnu sína. Nánar um stefnuna og vefkökur hér.
Samþykkt